maí 11, 2004

Helgin...

Ég get nú ekki sagt að ég hafi verið öflugur þátttakandi í skemmtannalífinu um helgina. Á föstudaginn sat ég heima og horfði á Friends með Söru. Svo komu Jenný, MAggi og Halli og horfðu á Idol með okkur. Svo þegar Sara fór heim með Orville þá ætluðum við að fara í keilu en það var 1-2 tíma bið!!! Ég er að segja ykkur....Keiluhöllin er alveg félagsmiðstöð Selfoss um helgar sko!! Ég hugsa að ég gæti setið þarna heilt kvöld og bara skoðað liðið!! Frekar fyndið!! Þannig við enduðum með því að kíkja í pool á Poolstofunni í Lágmúla, svo var bara haldið heim að lúlla.

Á laug var ég að vinna í Western frá 10-14.30. Þá fór ég yfir á Ráðhúskaffi og var þar til rúmlega 6. Þegar við vorum búin að ganga frá þar fór ég og náði í Birnu Sísí og Ingu Rannveig og fór með þær heim. Mín alveg að fíla sig sem 2 barna móðir :P Það er ágætt að fá þau lánuð í smá stund....en ég er nú ekki alveg að fara að búa til eitt svona strax!! *lol* Þegar þær voru sofnaðar þá horfði ég á "The ring"....some scary shit!! Svo sofnaði ég bara.

Á sunnudaginn vakaði ég kl:9, skutlaði stelpunum heim og fór svo í vinnuna í Europris (já...ég er með 4 vinnur!). Var þar 10-4....vældi svo í Halla að koma að ná í mig (var ekki að meika strætó!!), þannig við ákváðum að skella okkur í sund í góða veðrinu. Svo var haldið heim að TAKA TIL!! HAHAHAHAHA Jebb, ,ín fór heim að taka til!! Meikaði bú ekki að þrífa allt pleisið en ég tók til, ryksugaði og svona :D Svo kíktum við Sara í bíó á "U've got served"....OUCH!!! *lol* Þetta er svo SVAKALEGA illa leikin mynd að ég fann til á köflum!! Það eru GEÐVEIKIR DANSAR, GEGGJUÐ TÓNLIST og GEEEEEEÐVEIKT sætir gaurar í myndinni þannig...þetta var ekki al slæmt ;) En svona í alvöru.....vá hvað fólk getur hreyft sig!!! Ég þarf alveg að fara og æfa mig fyrir framan spegilinn!! Ég þarf aðeins að work on the Harlem shake!! Nei Brynja...ég er ekki að ná þessu!!! :P Maður var nú samt alveg í stuði eftir myndina að fara bara í bæinn og DANSA!! Annar er ekki mikið um að það sé hægt hér á landi!! Getu nú ekki hrópað húrra fyrir skífuskönkurum á skemmtistöðum bæjarins!! Það vantar alveeg stað með alvöru hip-hop. dansehall reggae og BOOTY MUSIC!! HAHAHAHAHAHA ;) U gotta be able to shake that a$$ right?!?!

En smá meira af skólamálum líka...Mín er búin að senda staðfestingargjaldið út!! :D Þannig nú er bara að bíða eftir restinni af pappírunum, þá get ég farið í sendiráðið og fengið VISA og svona ;) Vá hvað ég get ekki beðið!! Þetta verður alveg eins og í bíómyndunum bara!! Búa svona on campus með öllu hinu liðinu :P It's gonna be SO MUCH FUN!! En já....ég er að fara út til að læra!! Don't get me wrong!! ;)

En jæja.....back to work!!

"Keep your friends close, but your enemies even closer"

Posted by kyr at 11.05.04 09:17
Comments
Post a comment









Remember personal info?