
Það er alveg farið að hlakka í mér!!
Eurovision, grill, allir vinirnir, 1-2 öllarar.....kannski 3...4....bara fer eftir stemningunni!!
Svo verður maður náttúrulega að kíkja aðeins í bæinn...
Veit reyndar ekki hvert á að halda en ætli maður rölti ekki eitthvað um.
Ég og Sara ætlum reyndar að byrja að mála þegar ég kem heim úr vinnunni á morgun. Þurfum að lappa aðeins upp á þetta herbergi áður en hún flytur inn. Það er búið að vera frekar nice að vera bara ein....en ég verð nú hálf fegin að fá hana til mín...búið að vera frekar lonely. Svo er hún þarna svo mikið hvort eð er.
Mig langar líka að óska Jenný og Magga til hamingju.
Þau eru búin að taka innréttaðann bílskúr á leigu í Keilufelli....alveg í næsta húsi við Halla. Hjónakornin bara farin að búa! Við óskum þeim góðs gengis í þessum merka áfanga.
En back to work. Sara er svo að koma og ná í mig svo við getum farið að kaupa málingu, grill....og eh fleira.
Posted by kyr at 14.05.04 14:16