
...er þetta ein klámfengnasta Eurovision keppni sem haldin hefur verið?! Ég er að segja ykkur....það voru helmingurinn af gellunum....og margir af gæjunum bara hálf allsber!!Hvað var málið með sænsku gelluna....ég sver það ég hefði getað bara næstum því horft upp í heila á gellunni kjóllinn var svo stuttur! Svo var ein sem var varla í neinu!!! Ég held að plottið þar var að reyna að fá fólk til að hugsa ekki um að hún gat ALLS EKKI SUNGIÐ!!! :P
Já, á laugardagskvöldið kom liðið heim: Sara, Jenný, Maggi og Halli. Svo kom líka litla systir mín og Gróa vinkona hennar. Við grilluðum og svona. Við "fullorðna" fólkið skelltum í okkur eins og nokkrum öllurum. Svo að Eurovision loknu kláruðum við að gera okkur til og héldum beina leið niður á Ölver!! Þvílík snilld!! :P Það var eiginlega enginn inni á búllunni þannig við Maggi og Jenný slógum í gegna með hverjum hittaranum á eftir öðrum!! En eins og flestir menn vita þá syngja hvorki Sara né Halli.
Eftir Ölver héldum við öll í bæinn nema Maggi.....við getum sagt að hann hafi verið aðeins of "þreyttur" :P Þetta var eins og á 17 júní!! Bærinn var STAPPAÐUR!! Jenný og Halli héldu á Celtic en ég og Sara ætluðum á Sólon. Þar var röð alveg niður götuna þannig við ákváðum að nota gamla "fara úr peysunni og þykjast hafa verið inni" trikkið á Victor....en allt kom fyrir ekki. Ég gafst upp a röðinni þar þannig við fundum Jenný og héldum á Opus. Hún hafði þá skilið Halla greyið eftir einan á Celtic. Ekki það að hann þekkir ábyggilega meira en helminginn af liðinu sem hangir þarna þannig....hann bjargaði sér. Jenný stakk af um 2.30 held ég, en ég dró Söru út kl 4. Við hittum Halla og ætluðum að taka leigara heim...yeah right!! Það var svona 2 tíma bið!! Þannig við ákváðum að rölta upp Hverfisgötuna....veit ekki alveg why en við löbbuðum næstum alla götuna þegar ég hringdi í Jogga og hann fékk vin sinn til að keyra okkur heim. WE ALL LOVE YOU JOGGI!!! :D
Á sunnudag ætlaði ég svo að vera voðalga framtakssöm og spasla vegginn og eh en....ég endaði með því að horfa á video með Hall aallan daginn!! Svo voru tónleikar hjá kórnum um kvöldið. Frekar sybbin að standa og syngja en...ég stóð mig vel eins og alltaf ;) hehehe
Ég f´æekk mig svo loksins til að spasla í vegginn áðan.....verð svo að fara að mála!!
Posted by kyr at 18.05.04 10:56