Ég veit ég er búin að vera alveg léleg að skrifa á þessa síðu. En nú batnar það! Ég var bara EKKI að nenna að koma nálægt tölvu í fríinu!
Eins og kannski flestir sem ég þekki vita tók konan sér bara 9 daga frí frá ALLRI vinnu og fór til útlanda. Ég flaug til Amsterdam, var þar yfir dag og tók svo flug til mömmu í Bristol. VÁ hvað var gott að sjá mömmu...eða það litla sem ég náði að halda henni hjá mér. Það er ekkert lítið sem konan vinnur. Svo ef hún er ekki á skrifstofunni þá er hún í símanum. An allavega....
ég skemmti mér mjög vel. Fyrstu 4 dagana gerði ég EKKERT nema labba! Labbaði þenna blessaða "bæ" þveran og endilangan mörgu sinnum. Svo átti ég líka ALVEG BÁGT með mig...það eru skóbúðir ALLSTAÐAR!! *lol* Og allar ódýrar!! Ég endaði nú með því í allri ferðinni að kuapa mér 4 pör....en þau vöru öll´um eða undir 2000!! Svo mikill bargain shopper ;)
Eins og ég sagði, hjá mömmu gerði ég lítið annað en að labba, taka myndir, skoða í búðir (og versla smá). Ég reyndar náði mömmu með mér í fótsnyrtingu. Alveg furðulegasta fótsnyrting sem ég hef farið í! Hún notaði kornakrem, maska, olíur og allt eh svona voða fancy...en hún raspaði ekki á mér lappirnar!! Og hreinsaði ekki skítinn hjá nöglunum þannig....ég var næstum alveg jafn skítug og þurr og þegar eg labbaði inn *lol* :P En þetta var voða þægilegt.
Annað kvöldið mitt kíkti ég líka ein á pöbba/klúbba rölt. Það var alveg ágætt bara. Held ég hafi endað með að fara inn á ca 4 staði. En 3 kvöldið mitt (mánudag minnir mig) þá hringdi mamma í mig og sagði að það væri e-h flugfreyja sem langaði svo að kíkja út, þannig ég sagði henni bara endilega að senda hana heim, ég mundi kíkja með henni....fattaði náttúrulega ekkert að spurja hvað hún héti eða hvað hún væri gömul!! En hún heitir Heiða og er...25...26...e-h svoleiðis. Við skemmtum okkur mjög vel á Brannanigans....held ég að staðurinn heiti. Þið getið líka kíkt í myndaalbúmið. Svo er líka eitt sem þið sjáið á allavega einni myndinni....í Bretlandi er ALLT Í LAGI að vera með bumbuna úti. Gellur sem eru svona 3x ég eru í fötum sem ég mundi ekki láta sjá mig í!! Ég reyndar spurði 2 stráka sem ég hitti hvort gaurum þætti þetta í lagi...en svo er ekki. Samt er eins og flestar af þessum gellum séu með gaur!! ...annar skil ég þetta ekki....
Ég kíkti líka einn daginn til Bath, sem er lítill bær rétt hjá Bristol. Það er geggjað flott þarna. Gömul geggjað flott hús. ÞAr var gönguferðin mín nálægt 3 tímum!! En ég var ekkert að fatta hvað ég var lengi að labba. Endaði náttúrulega með því að týnast og svona, bara eins og mér er einni líkt. En ég rölti bara áfram þangað til ég fann miðbæinn aftur. Ég hringdi líka í mömmu og sagði henni að hún VERÐI bara að fara þangað sem fyrst. Þetta er alveg fyrir hana. Fullt af svona litlum götum, kaffihúsum og litlum búðum. Minnir mann svolítið á Frakkland.
En eftir næstum 6 daga í Bristol flaug ég til Amsterdam. Þar tjékkaði ég mig inn á "The flying Pig" hostel í miðbænum. Fór svo og hitti Sönnu. Sanna er gella sem ég er búin að vera að spjalla við á MSN í svolítin tíma. Fín gella. Við röltum bara um, fengum okkur að borða og svona. Fórum svo á hostelið mitt og gerðum okkur til fyrir Jazzy Jeff show á Paradiso. Þegar okkur var loksins hleypt inn þar varð ég fyrir frekar miklum vonbrygðum. Við komum um 12, og Jazzy átti ekki að koma fyrr en 2....sem var svosum allt í lagi.....fyrir utan að "upphitunin" var DANSTÓNLIST!! JÁ TAKK!! Ég sat þarna í 2 tíma að hlusta á danstónlist!! En þegar kallin kom loksins á kom hann með hvern slagarann á eftir öðrum!! Ég náttúrulega dansaði "af mér rass***ið" eins og mér einni er lagið :) Svo var ég komin í svo mikið stuð að ég bara dansaði við danstónlist í ábyggilega hálftíma!! Svo eins og mér einni er líka lagið var ég ekki komin á hostelið fyrr en 8-9 morguninn eftir!! Þá lá Sandra vinkona frá Þýskalandi í rúminu mínu. Hún hafði komið með rútu fyrr um morguninn. Þegar ég kom fór hún og fékk sér að borða og eh á meðan ég lagði mig í 3 tíma.
Á laugardeginum gerðum við mest lítið. Ég og Sandra (hún var með mér í USA) röltum bara um, fórum á flóamarkað, kíktum í búðir og svona. Um kvöldið röltum við svo um rauða hverfið og svona. Ætluðum að kíkja á Ministry sem er svona r'n'b klúbbur....en Sandra var ekki á að hlusta bara á r'n'b allt kvöldið þannig ég gafst upp og fór með henni á einhvern svona "blandaðan" klúbb. VÁ!!!! ÞAR VAR ALVEG LEIÐINLEGT!! Í fyrsta lagi var þetta eins og breta nýlenda. Ég sá bara 1 sætan strák (sem var svo ekki sætur svona "up close")...og ég gafst upp eftir að heyra "Summer of 69" og "Like a prayer" í eh 80´syrpu!! Þá var alveg tími til að fara heim.
Sunnudagurinn var svo letidagur. Fórum í smá túrista siglingu um Amsterdam, kíktum á klámsafnið. Ætluðum að fara og sjá Önnu Frank húsið (ég í annað skipti) en ég var ekki alveg á því að bíða úti í röð, í rigningu í 2-3 tíma. Þannig Sandra ákvað að fara bara á mánudeginum. Þá héldum við bara upp á hostel. Kvöldinu eyddum við svo bara í að fá okkur að borða, rölta um og skoða rauða hverfið og fá okkur öl. Svo vorum við farnar að sofa bara um miðnætti.
Rétt um hádegi á mánudeginum fór ég svo upp á flugvöll og hélt heim. Það var ekkert smá gaman að sj´aSöndru aftur!! Mig langaði bara ekkert að fara heim...but....had to go back to reality!
VÁ!!! Engin smá ritgerð!!! Ég vona að eh nenni að lesa þetta allt!! Ég lofa að vera svo duglegri við að skrifa!!
ÆM ÁT!! PÍS! ;)
Posted by kyr at 09.06.04 11:57