Ég sit hérna í vinnunni hálf lasin. Ég var hálfslöpp í síðustu viku en svo lagaðist það, var bara með smá kvef....en kvefið í dag er EKKI að gera góða hluti. Ég hljóma eins og lítill strákur í mútum!! Ef ég þarf að fara upp á háu tónana þá heyrist bara ekki neitt!! En við skulum vona að þetta lagist. Kúnnarnir glápa bara á mig....heyra varla í mér :P
En helgin...á föstudaginn gerði ég nú ekki mikið....María kom með Karen Lilju. Hún var að fara á e-h staffa djamm, þannig ég sagði henni að ég skildi fara í mömmó :) Svo kíkti Birna og ég skreytti á henni neglurnar í staðin fyrir flétturnar sem hún gerði í mig :)
Á laugardag...
...þá vaknaði ég um 9.30, alveg i panik, hélt að Karen væri löngu vöknuð...en ég þurfti að vekja hana klukkan rúmlega 10!! Þá kíktum við í Kringluna með Birnu. Marí a hringdi í mig klukkan rúmlega 11 og sagðist vera á leiðinni....ég sagði henni nú bara að slappa af, ég skildi bara hafa Karen lengur :) Það er alveg ótrúlegt hvað hún heldur að hún verði að vera komin fyrir 12 að ná í hana *lol*
Um kvöldið komu svo Jenny og Birna í mat. Sara eldaði þetta líka dýrindis pasta handa okkur. Svo dunduðum við okkur bara að gera hárið á hvor annarri....vöffla, krulla og flétta *lol* Svo komu Brynja og Ragga....og á endanum komu Gai, Natasha og e-h 2 vinir þeirra.
Þaðan var tekin taxi niður á Hlemm því við Sara ætluðum okkur að rölta Laugara :) Þar hitti maður margan manninn....Jón Risa, Magga mús ofl.
Við stoppuðum við á Vegamótum. Þar hitti ég litla bróður hans Óskars. Við stoppuðum stutt þar og röltum á Celtic Cross að kíkja á Magga og Halla. Þar var rétt stoppað og drukkinn einn öl (eki það að megnið af mínum hafi bara farið í gólfið því jafnvægið var ekki alveg upp á sitt besta). Eftir það röltum við á Felix. Þar hittum við Tinnu, Áróru og kallinn hennar. Sjaldséðir hvítir hrafnar segi ég nú bara :P Svona eru þessi "hjón". Eftir Felix komum við við í Bitabílnum og fengum okkur einn feitann hjá Jenný :D Eða réttara sagt át ég helminginn af borgaranum hennar Söru :P
Þá endaði röltið á Opus. Jesús Gvuð!! Það voru einhverjir gaurar fyrir framan okkur....svona 18 ára!! Ég náttúrulega varð að commenta á það við dyravörðin að þeir væru nú svona í yngri kantinum til að vera inni á skemmtistöðum...en þá segir hann mér að það sé 18 ára inn!!! WHAT THE F%$#?!?!?!! Er það löglegt?? Það hlaut e-h að vera að þetta væri eins og útskriftarball 10 bekkinga í grunnskóla Selfoss!!! En hvað um það!! Ég var í fíling þannig...ég fórbara að dansa!! Man varla hvern ég sá eða hitti....var bara í mínu "zone" á og við dansgólfið :D Svo á endanum skutluðu Rubin og Papus okkur Söru og Röggu heim.
Það má segja að þegar ég vaknaði fyrst á sunnudagsmorgninum hafi ferskleikinn ekki alveg verið í fyrirúmi....en það er ekkert sem 1-2 verkjatöflur, hamborgari, franskar og Diet kók gátu ekki lagað :D
En...gotta get back to work. Þarf að fara að hlaupa í mat :)
Later peeps!!
Posted by kyr at 14.06.04 13:22