júní 28, 2004

52 DAGAR!!!! :D

Já dömur og herrar, í dag eru 52 dagar þangað til að ég fer út!! Vá....it's all becoming reality!!! Mig er farið að hlakka ekkert smá til!! ÉG fæ reyndar ekki aðp flytja inn fyrr en viku eftir að ég kem, en ég hlít nú að fá að gista hjá einhverjum af þessum vinum mínum þarna ;) Ég hringdi og var að spurja hvort það væri ekki sjéns að fá að flytja inn aðeins fyrr en....hún sagði bara að það væri verið að reyna að flytja innflutningsdeginum það færi allt eftir því hvernig fer að byggja þetta!!! JÁ TAKK!! Þetta er allt bara glænýtt :D Þið getið tjékkað á þessu á heimasíðunni þeirra

...næsta mál á dagskrá....FAME...

Ok...ég er kannski enginn "pro" en ég get nú ekki sagt allt of marga góða hluti um þessa blessuðu sýningu. Ég verð nú að segja að þetta er bara svona eins og "average" menntaskóla sýning. Sko...í fyrsta lagi....tónlisting....WOW!! Sorry en Barði og Margrét Eir ættu að geta betur en þetta!! Hvað er málið með að láta Álfrúnu syngja 2 sóló lög...með engan annann á sviðinu....og í ALLT OF hárri tóntegund?!?! Fainting Leikurinn er nú í lagi hjá henni svosum...samt alltaf eins og hún sé í "Stundinni okkar" að leika fyrir börnin.
Svo sorry en...Ester Thalia....er ekki alveg að gera góða luti að syngja "aðal" lagið! Hefði líka þurft að lækka tóntegundina fyrir hana!! Svo vantar líka allan kraft í hana...er eins hún viti ekki alveg hvað hún á að gera við sig á köflum í sýningunni. Vantar alla innlifun!!
Sveppi stendur sig bara ágætlega að vera bara hyper *lol* Alveg fyndið að heyra hann syngja!!
það er eins og þau einu 2 sem get almennilega sungið (Gummi og Jóhanna) fái varla að sýna hvað í þeir býr.
En annars held ég nú samt að þessi sýning eigi eftir að ganga vel. Ég held líka að markhópurinn sé sá sami og voru fastagestir á FB sýningunum hjá okkur hérna í "den". Ég er líka viss um að 10-15 ára stelpum sem vilja sjá Jónsa sinn og ungfrú Ísland sé alveg sama með öll aukahljóðin sem koma innanúr Smárakind...held það þurfi nú að hljóðeinangra þetta aðeins betur.
En ég ætla ekki bara að vera leiðinleg....dansarnig margir voru MJÖG góðir og fannt mér Sigrún Birna bera af hvað það varðar. Svo er fullta f fallegu fólki í þessari sýningu þannig þetta er ágætis afþreying Too Happy

Ég mæli samt alveg með að kíkja....en ekki samt búast við of miklu....

Posted by kyr at 28.06.04 15:48
Comments
Post a comment









Remember personal info?