ég er að segja ykkur það...það er eins og að það standi á enninu á mér "ef þú ert perri talaðu við mig"!!
Ég var að vinna á kaffihúsinu um helgina, var bara aö þrífa og e-h....labbar e-h gaur sem hafði verið að borða köku að mér og réttir mér servíettu og biður mig að henda henni....sem er ekki frásögu færandi nema ég lít á servíettuna...þá er gaurinn búin að teikna TYPPI á hana!! Svo þegar ég lít út þá er hann að glápa á mig.....svo fór hann!! OJ OJ OJ OJ OJ !!!! Ekki bara að þetta hafi verið typpi heldur var hann sko búin að teikna dropa leka af því líka!! Svo var mynd af e-h öðru sem ég veit ekki alveg hvað átti að vera. YAKK!! Þetta er ekki í fyrsta skipti sem e-h svona kemur fyrir mig. Þegar ég var að vinna fyrir nokkrum árum þá flassaði einn gaur mig....í vinnunni!!
Hann sat bara í makindum með vininn hangandi út!!! STAY AWAY FROM ME!! En thank God þá fór hann líka.
en það er annað sem mig langar að tala um....fólk sem fer ekki í sturtu nógu oft
...og fólk sem þarf að þrífa á sér grillið (tennurnar fyrir ykkur sem ekki skiljið
...
...ok...ég vinn við "þjónustustörf" svona eins og fólk kallar það. Ég er í kringum mismunandinfólk allan daginn...og ég verð að segja að það er sumt fólk sem þarf ALVEG AÐ LÆRA AÐ FARA Í STURTU!!! Ég er að segja ykkur það!! Lyktin sem sumir framleiða...og sumir setja á sig. Mér finnst nú bara að fólk ætti að sýna manni smá virðingarvott með því að sturta sig og bursta í sér tennurnar áður en það kemur. Það var einn gaur hérna í gær sem ég átti alveg bágt með að tala við því það var svo mikil svitafýla af honum....svo á eftir kom e-h gella sem var með svo mikið ylmvatn (og alveg vond lykt í ofan álag) að ég þurfti að hafa gluggann opin í 10 mín til að lofta út!!
WOW....sorry...ég veit þetta er ekki skemmtilegasta lesningin en ég bara VARÐ að koma þessu út!!!
Gotta go to lunch....
Leiter ;)
Posted by kyr at 08.07.04 11:52