júlí 26, 2004

I'm back!! :D

Jæja já....mín bara komin heim úr fríinu. Ég skrapp með honum bróður mínum til mömmu í viku, sem vara bara fínt. Má segja að maður hafi fengið smá "family overdose" *lol* Ég held að síðasta skipti sem ég eyddi heilli viku með mömu og Marteini hafi verið -'89 eða e-h, keyra hringinn með Bjarna Ara og Stuðmenn í botni!! ...

...anyways. Þetta var bara hið besta frí. Komum til London seint á mánudag, mamma "gamla" tók sig til og náði í okkur, svo héldum við aftur til Bristol. ÉG ætla nú ekki að drekkja ykkur í smáatriðum.
Þriðjudagurinn fór í að keyra e-h svaka krókaleið að skoða Stonehenge, og svo koma við í Bath á leiðinni til baka að skoða rómversku böðin. Svo var kíkt í kebab með samstarfsmönnum mömmu. Endaði svo á e-h bar með þeim öllum en dró mömmu heim, vara bara þreytt (líka frekar skrítið að vera með MÖMMU á e-h bar!! Rolling Eyes
Miðvikudagurinn var afslappaður. Kíktum aðeins í bæinn öll familían, fórum vo heim að elda því mamma var búin að bjóða öllu liðinu sem vinnur fyrir hana í mat um kvöldið. (ég þurfti að burðast með 3 læri, rauðkál og grænar baunir frá Íslandi), en það var alveg þess virði, GEGGJAÐ GOTT!! Kíkti svo aðeins út með crewinu um kvöldið.
Á fimmtudeginum áttum við svo að fara í loftbelgjaferð (MAMMA MÍN ER SNILLINGUR Smile) en því var frestað af því það var ekki veður.....

wow.....búin að vinna...rest á morgun...

Posted by kyr at 26.07.04 18:20
Comments
Post a comment









Remember personal info?