23 dagar.......23 dagar.....ÞAÐ ERU BARA 23 DAGA ÞANGAÐ TIL ÉG FER!!! Djís....þetta er bara allt að skella á 
Anyways....hvert var ég komin í gær...
já fimmtudagurinn...loftbelgjaferðinni frestað
. ÞAnni ég fór á e-h stað em heitir Revolution að hitta Steve og Gústa (þeir vinna fyrir mömmu). Þar sátum við úti að drekka öl og e-j þegar ég rek augun í auglýsingu sem var hjá klúbbnum á móti að DJ Quest DMC champion 2003 væri að spila þar um kvöldið. Ég og strákarnir löbbuðum aftur heim og náðum í Martein. Þegar við komum inn á klúbbinn voru svona 10 manns þar inni og kl tími í DJ-inn. Þannig við ákváðum að kíkja með e-h gaurum á "Arc bar", bara fínt þar, minnti mig soltið á Prikið í Sólon fíling. Pínulítið þar sem allir þekktust en alveg skrítin hönnun þarna inni og alveg geggjað skrítin samblanda af tónlist. Svo kíktum við aftur á DC Quest en þá voru komnir kannski 20 manns þarna inn...sem hefðu betur sleppt því að koma. ÞEtta var eins og einkapartý uppi á sviði með 15 manns að horfa á....og engir almennilegir DJ taktar....þannig við fórum bara. Hittum Steve og Gústa fyrir utan (týndum þeim fyrr um kvöldið. Marteinn fór með þeim á e-h "After hours underground club" en ég fór bara heim.
Á föstudeginum var ekki mikið gert. Mamma mætti í vinnuna um morguninn þannig ég fór bara á röltið í bænum, hitti svo Martein og við fórum upp í vinnu til mömmu um 3 leitið. Kl 6 mættum við svo samviskusamlega í loftbelgjaferð (fengum nýtt flug)
en þá var henni frestað líka vegna veðurs
Þannig við fórum bara heim aftur að chilla og glápa á imbann.
...
...á laug vöknuðum við svo öll bara e-h um hádegi. Stefnan átti að vera í dýragarðinn en mamma var í e-h krísu af því e-h flugmaður var ekki með straujárn til að strauja skyrtuna sína og var að fara í flug...þannig við enduðum bara með því að fara í PC world (búð) og e-h. Ég og mamma kíktum svo í
. Það var geggjað gaman, mamma hafði ekki farið síðan 1983 held ég, en hún stóð sig með stakri prýði. GO MAMMA!! Um kvöldið fór ég svo í bíó á Spiderman með strákunum, svo bara heim að lúlla.
Á sunnudaginn komumst við svo loksins alla leið í dýragarðinn
. Þar vorum við allan morguninn þangað til við héldum upp á Heathrow. Við vorum mætt þar næstum 4 tímum fyrir flug!! Þannig ég horfði bara á Shrek 2 og Friends á fínu fartölvunni minni
.
Mánudagur var svo bara BACK 2 REALITY!! Mætt í vinnuna kl.10 og svona. Ég er að vinna alla daga og allar helgar þangað til 3 dögum áður en ég fer. STUÐ!! But u gotta do what u gotta do!!
It's all about the benjamins BABY!!! 