september 09, 2004

Kveðja frá Temple University...

DSCN0011.JPG

Komið þið sæl dömur og herrar. Ég ´veit ég hef ekki verið allt of dugleg að blogga....en ég verð bara að viðurkenna að þa hafa bara aðrir hlutir verið í forgang.....BUT I'M BACK IN BUISNESS!! Smile

Ég nenni ekki að rekja alla söguna hingað til, en ég skal segja ykkur hana í stuttu máli...

Ég kom til PA 19 ágúst (finnst reyndar eins og það sé miklu lengra síðan....). Eftir mikið brölt og misskilning up pick up á flugvellinum dröslaðist ég í lest til Philly. Kíkti til Ryans í 2 daga, og fór svo til Millsaps-Robbins-Leavitt fjöslkyldunar (fólkið sem ég vann fyrir í fyrra) í nokkrar nætur. Þurfti að mæta í skólan e-h morgna, á "orientation"´, enskupróf, annað "orientation", skrá mig í tíma.....bla bla bla.
25 flutti ég svo inn í íbúðina mína Too Happy 1 Hélt reyndar að herbergið mitt væri "aðeins" stærra, en þetta er fínt. Byggingin sem ég bý í er með svona "lounge area" þar sem eru pool borð, fótboltaspil og 3 risasjónvörp. Svo erum við með tölvuherbergi, æfingaraðstöðu og ljósabekki :) Þannig þetta er fínt. Íbúðin er með 4 herbergi og 4 baðherbergi. Svo erum við með stofu og eldhús. Meðleigjendurnir eru fínir. Þetta er nú samt kallað "the multi-cultural apartment" þar sem allar af okkur tölum annað tungumál. Ein gellan er frá Kína, er hérna í Meistaranámi. Gellan vi hliðina á mér er fædd í Ethíópíu en alin upp í Washington DC, og svo er ein frá Kóreu....en hún er fædd og uppalin í Californíu,og hefur aldrei komið til Kóreu.

Skólinn er líka fínn, tímarnir sem ég er í eru flestir bara skemmtilegir...

...Fyrsti tíminn sem ég er í heitir "english composition woth focus on race", þannig þetta er svona "les/ritgerðaráfangi" en megin áherslan er á mismunandi þjóðerni. Næsti tími er ÆÐI!!! Hann heitir "African American studies, special topics. Hip-hop and black culture". Reyndar svolítið skrítið að vera eina hvíta gellan af yfir 30 manns, en það eru 3 hvítir strákar *lol* Og haldið þið ekki að Kennarinn minn sé ekki þessi líka "good lookin brotha" Lol Hann er ábyggilega svona að nálgast 30, mætir í tíma í gallastuttbuxum (svona hip-hop style), "Welcome to the hood" stuttermabol, í strigaskóm og með svona "rasta" húfu eins og Brynja litla er alltaf með. Hann er alveg svalur, ég tók mynd af honum í dag....bara til að sýna ykkur hvað ég er að tala um. Svo segir hann bara shit og fuck og allt í tímum....og eins og hann sagði þá er það bara allt í lagi fyrst þetta er "hip-hop" tími! Næsti tími sem ég er í er dans. Hélt að þetta væri svona bóklegur tími, til að læra um dans og danstegundir. En nei nei, við erum að dansa bara í öllum tímum!! Þetta er bara fínt. Ekkert til að hrópa húrra fyrir, en virðist vera frekar auðvelt að fá góða einkun. Síðasti tíminn er HELL!!! Hann heitir "African American studies, History since 1900", eini sögutíminn sem var opinn!! Nei nei...þetta er ekkert svo slæmt. En þetta er stærsti tíminn sem ég er í, ég held það sé nálægt 100 manns með mér í tíma. Það er líka frekar erfitt að skilja kennarann....hún er líka frekar skrítin, hún heitir afrísku nafni, Anodolo (held ég), en lítur út fyrir að vera austur Evrópsk eða eh *lol*

En að öðru leyti gengur allt bara ágætlega. Er búin að kauða flest sem ég þarf hérna, er reyndar að fara yfirum að vera ekki með græjur né sjónvarp. But hey....that's life I guess Afro

Ég ætla ekki að drekkja ykkur alveg á fyrsta bloggi en ég lofa að vera dugleg að skrifa núna!! Endilega droppiði línu, skrifið comment og e-h. Það er alltaf gaman að heyra frá liðinu heima á klakanum!! 3 More Kisses

Sveitt kveðja frá Philly......

Posted by kyr at 09.09.04 23:49
Comments
Post a comment









Remember personal info?