Jæja.....hvað er búið að ganga á síðan síðast....
Ég verð að segja ykkur frá tónleikunum sem ég fór á. Haldið þið ekki að konan hafi loksins komist á tónleika með Lil'Kim!!! Á svæðinu áttu að vera Kim, Swizz Beats, Cassidy og Styles P. Mín fór alveg með fiðring í maganum að kaupa mia fyrir mig og Malin (sænska au-pair vinkona mín
). Anyways...húsið átti að opna kl.7 þannig við mættum tímanlega kl. 7.30. Ekki margir mættir en allt í lagi. Við fengum okkur bara sæti og chilluðum......2 1/2 tíma seinna var farin að fara smá pirringur um mig þar sem showið átti að byrja um 8.30. Þá mæta á sviðið e-h no-name rapparaar og taka e-h 3 lög....sem var allt í lagi...ekki það að ég hafi skilið e-h af því sem þeir voru að segja. Þegar þeir voru búnir mætti "The Queen B" loksins á svið.....2 tímum of seint. Með henni í för er Swizz Beats...og svona 20 manns sem bara stóðu þarna....but I guess that's how these celebrities do it. Fyrsta sem hún gerði var að fá nokkrar gellur upp á svið til að taka þá í "Eagle" danskeppni. Fyrir ykkur sem ekki vitið þá er "The Eagle" ....."dansspor" sem felur í sér að beygja hnén.....og hrista rassinn allsvakalega. Eftir að allar gellurnar voru búnar.....helduru að verðlauning hafi ekki verið DEMANTSÚR ´r nýu úralínunni frá Kim!!! HOT DAMN!!! MÁ ÉG FÁ EITT!?!?!?
Anyways.....
þegar þetta var búið setti ég mig í stellingar að fara að loksins hlusta á drottninguna performera!! Nei nei.....gellan tekur 1/5 úr 2 lögum OG FER SVO!!!!!!!
WHAT?!?!?! BORGAÐI ÉG 42 DOLLARA TIL AÐ SJÁ E-H GELLUR HRISTA Á SÉR RASSINN?!?! Svo komu Styles P og Cassidy ekki.....og Swizz gerði ekkert!!!! Ég vissi ekki alveg hvert ég átti að fara ég var svo reið!!! Flestir ruku út til að drífa sig í eftirpartýið.....EN EKKI ÉG!!! ÉG VIL ENDURGREITT!!! Það voru ca 15-20 manns eftir þegar "showið" var búið.....alveg brjál. Og við enduðum með að fá endurgreitt!!
Ég veit ekki alveg hvar statusinn á aðdáun minni á konunni er lengur. Pldu í að auglýsa TÓNLEIKA.....OG TAKA EKKI EINU SINNI EITT LAG?!?!?! 
....ekki það að ég er ennþá að hlusta á diskana hennar.....en GOD DAMN skal ég ALDREI kaupa mér miða á "tónleika" með henni aftur *lol*
Það eru fullt af öðrum tónleikum að koma.....Roots, Usher, R.Kelly og Jay-Z: BEst of both worlds tour, Fat Joe með Trinu og Jadakiss, Twista og Ying-Yang twins....and we can go on and on!!
En....back to my homework....
Posted by kyr at 14.09.04 01:11