september 14, 2004

Gamalt....

ÉG var búin að gleyma að ég bloggað í flugvélinni þegar ég var á leiðinni til Philly......gat augljóslega ekki póstað þaðan...en hérna er það. Skrifað 19 ágúst 2004:

Úff.....jæja....þá er maður bara lagður i hann!! Vaknaði kl:7.30 í morgun ekki alveg að fatta hvaða dagur það var. Ég var mestan partinn búin að pakka.....en samt er þetta ekki að sökkva inn....ÉG ER AÐ FARA!!! *lol*

Eftir nokkrar heimsóknir og langa kveðjustund skutlaði Ragga vinkona hennar mömmu okkur mæðgunum upp á völl. Mín tók sig bara til og svaf alla leiðina....ég veit ekki hvaðan þessi þreyta kemur, búin að gera ekkert annað en að sofa, ætli þetta sé ekki stressið að koma út svona :P Þegar við loksins komum vorum við heppnar því það var eiginlega engin röð. Þegar ég tjékkaði mig inn kom mér það frekar á óvart að ég var ekki með nema ca 60 kg,....hélt það yrði nú e-h meira, en svo var ekki. Við tróðum okkur í gegnum öryggisgæsluna og héldum náttúrulega rakleiðis upp í “íslensku búðina” til að kaupa nammi :D Það er ekki hægt að yfirgefa landið svona lengi án þess að taka með sér allavega eins og mánaðarskamt af lakkrískonfekti, kúlusúkk og þristum. Ég og mamma chilluðum svo smá, fengum okkur einn kaffi og röltum svo út að hliði. Mömmu hlið vara bara við hliðina á mínu....já btw....mamma kom heim frá UK í nokkra daga til að fara í skírnina hjá Ísabellu Sól nýju litlu frænku minni og slappa aðeins af og var á leiðinni þangað aftur  Ég settist svo niður aðeins og rölti svo að mínu hliði. Eftir ca 10 mín í röðinni kemur þessi gullfallegi maður og tautar með sér að það sé búið að seinka fluginu um KLUKKUTÍMA vegna “technical problems”. DAMN!! Ég var nú ekki alveg í stuði til að hanga þarna í annan kltíma.....flugvellir eru ekki það skemmtilegasta place að hanga á. En ég nældi mér bara í eins og 1 Corona og settist niður með geislaspilarann.

Jæja....

ca 45 mín seinna er farið að tjékka inn. Þegar ég sest svo niður í vélinni byrjar flugstjórinn e-h að tjá sig um að það hafi svo engin bilun verið.....bara þurftu að vera viss. I guess I can’t blame them for that. En auðvitað með minni heppni lendi ég við hliðina á einhverjum fornaldar kana. ÉG ætlaði nú ekki að fara að láta hann fara e-h í taugarnar á mér þannig ég setti bara upp heyrnatólin og ætlaði að fara að horfa á imbann....en þar sem ég er ALLTAF svona óheppinn í flugum þá heyrðist ekkert í blessuðu tólunum. Þannig ég fékk flugfreyjuna til að finna handa mér annað sæti. Þá lennti ég við ganginn við hliðina á e-h sextugum þjóðverjum.....ef þið þekkið mið vel þá kannski vitið þið að það er alveg takmarkað af þjóðverjum sem ég þoli...bara svona eftir reynslu mína yfir árin, en þessir voru bara hinir fínustu kallar. Tala varla stakt í ensku, þannig öll tjáning við mig og flugfreyjurnar fer fram í handabendingum og þessum 10 orðum í ensku sem þeir kunna ;) En þeir eru búnir að gefa mér nammi og allt so.....they aiight with me ;)

En ég sit hérna núna í vélinni alveg ekki að fatta það að ég er FARIN!! (þetta verður póstað á síðunni þegar ég kemst á netið). Frekar svona surreal að fara að hitta Nick, Ryan, Flo, Kelly.....og bara ALLA í kvöld. Ég lendi á BWI og hitti Nick þar í smá stund því ég keypti íslenskan vodka fyrir hann. Svo fer ég í lestinni til Philly þar sem Flo ætlar að ná í mig. Þaðan liggur leiðin heim til hennar til að droppa draslinu mínu og fara svo á “The wild onion” þar sem Ryan er að vinna til að fá okkur nokkra öllara eins og kananum sæmir best :D Svo er ágætisdagskrá hjá mér næstu daga.....redda einingunum, fá mér síma, fara á skólakynningu og í stöðupróf, flytja inn í íbúðina mína og kaupa allt sem mig vantar þar inn....og byrja svo í skólanum :D

En I*’ll keep u updated hvernig allt gengur og ég treysti á ykkur að kommenta hérna á síðuna og droppa mér skemmtileg e-mail með öllu slúðrinu að heiman ;)

From the skies I say I’M OUT!!

Posted by kyr at 14.09.04 22:36
Comments
Post a comment









Remember personal info?