Vitið þið...að í skólanum mínum eru 32.000 nemendur, og ég ELSKA það!! ÞAð er alveg allskonar lið hérna. Bestar af öllum eru samt gellurnar sem koma í minipilsi og háhæluðum skóm í tíma! Ég er að segja ykkur!! Það eru gellur hérna sem eru svo upptekna a því að vera sætar í skólanum að þær mæta betur klæddar en flestar sem ég þekki far á djammið! Alveg í kjólum og bolum með júllurnar (brjóstin) út, mimipilsum og í skóm með hærri hæl en ég gæti labbað á 6 skref!! *lol*
Allavega...annars er bara allt það besta að frétta. Það er "homecoming" þessa vikuna....ekki það að ég viti e-h um þennan blessaða atburð fyrir utan að það er fullt að gerast á campus og svo er það náttúrulega fótboltaleikurinn og "Homecoming king and queen". En ég og Sharee vinkona mín ætlum að gerast svona sjálfboðaliðar og taka krakka með okkur á leikinn. Þetta er svona smá prógram hjá skólanum, ég held þetta verði gaman 
Já....ég er íka byrjuð í gospelkór
Þetta er allur pakkinn...kirkja, kór, sjálfboðaliðastörf....við fórum um síðustu helgi að vinna í athvarfi sem fæðir heimilislausa. Svo erum við að fara að vinna með foreldralausum börnum (mér finnst munaðarleysingjar svo vont orð e-h), svo er verið að syngja á ýmsum stöðum. Þetta er GEGGJAÐ gaman. Var svolítið yfirþyrmandi fyrst....ég var alveg eina hvíta gellan í herberginu með ca 50-60 manns...en mér var tekið með opnum örmum þannig...þetta er bara gaman 
En núna er kominn háttatími!
Untill next time....
Posted by kyr at 08.10.04 02:58