október 22, 2004

OK...

...For my english speaking people that might accidentally wonder to my page...ICELANDIC PEOPLE DO GET COLD!!

Lol, þá er ég búin að koma þessu frá mér! Það er eins og af því að maður er frá landi sem hefur orðið "ís" í nafninu...þá er eins og maður sé með e-h innbyggt hitakerfi í líkamanum. Það er nefninlega farið að kólna hérna og ef ég segi eitt orð um það að mér sé kalt...þá fæ ég bara "lookið" og spurninguna "Ain't u from ICELAND??". Lol

Annars er bara allt gott að frétta. Gengur bara ágætlega í skólanum. Er búin að fá A, A- og A í verkefnunum mínum í danstímanum :) Svo er bara að skrifa 2 ritgerðir og endurskrifa 2 fyrir ensku (btw ein ritgerðin er 10 bls!!), svo fékk ég 8 á sögu mid-term prófinu mínu, var hærri en 94% af bekknum þannig...ég var bara sátt.

Ég ætla ekki að hafa þetta langt...John er að kíkja í heimsókn, hef ekki séð hann í næstum ár!

Friður...

Posted by kyr at 22.10.04 23:58
Comments
Post a comment









Remember personal info?