nóvember 11, 2004

Ein alveg löt...

Eg er alveg versti bloggari í heimi!

Af mér er bara allt það besta að frétta. Er reyndar að bilast á dónaskapnum í sögu kennaranum mínum.....en hey....that's life. Mér gengur annars bara ágætlega í skólanum. Er að fá ágætis einkunnir þannig, ég kvarta ekki mikið.

Annars er farið að kólna EKKERT SMÁ hérna!! fór niður í 22F!! Hvað ætli það sé...-2 eða eh. Ég er farin að ganga í úlpu og komin með ágætis kvef og svona....Ætli veturinn sé ekki bara næstum kominn!! ;)

En ég er búin að setja inn nokkrar myndir. Graffiti myndir frá labbitúr sem við fórum í fyrir einn tímann minn. Geggjað flott verk!!

En ég verð að fara að sofa...
Ég er með geggjað slúður sem ég ætla að reyna að pósta á morgun!!

Leiter aligeiter!!

Posted by kyr at 11.11.04 05:57
Comments
Post a comment









Remember personal info?