nóvember 22, 2004

Fer að styttast í það...

Vá hvað tíminn er fljótur að líða! Það eru bara 4 vikur þangað til að prófin eru búin og mín er bara að koma heim. ÚFF. Ég verð nú reyndar að viðurkenna að ég er farin að hlakka til að koma heim...fá eitthvað almennilegt að borða. Það er ótrúlegt þegar maður er í burtu í svona tíma þá fer maður að sakna furðulegustu hluta....mig til dæmis langaði ekkert SMÁ í bjúgu með uppstúf og kartöflum og appelsín að drekka í gær!!

En annars er bara allt ágætt að frétta. Er að leggja lokahönd á 8 bls ritgerð og þarf svo að byrja á annarri sem á að vear e-h staðar á bilinu 5-15 bls. Ég var að reikna saman það sem ég er búin að vera að skila inn síðustu 2 vikur og það er um 40 bls!!! Það er ekkert smá sem maður er látin skrifa hérna *lol*

Thanksgiving fríið er að byrja núna á miðviudaginn. Ég er í fríi í 5 daga þannig ég ætla bara að fara til familíunnar sem ég var að vinna hjá í fyrra og vera þar í 3 daga, hertaka gamla herbergið mitt og leika við strákana. Nenni ekki að hanga ein heima í næstum viku þar sem allar gelurnar sem ég bý með eru að fara e-h í burtu.

En jæja....tími til að koma sér í bælið. Er að fara í próf í fyrramálið, þarf að vakna snemma til að læra!!

Knús og kossar...

Posted by kyr at 22.11.04 05:43
Comments
Post a comment









Remember personal info?