desember 16, 2004

Niðurstöður...

1110_426x104.jpg

Ég var að lesa það á VH1 vefnum að hann Gamli Bastarður, eða Stóra Barn Jesús eins og sumir vilja kalla hann hafi látist af völdum þess að hann tók kókaín á sama tíma og hann var á lyfseðilsskyldum verkjalyfjum. Lát hans var úrskurðað slys. Megi hann hvíla í friði.

En þá að mér ;) Ég sit hérna og er alveg ekki að nenna að endurskrifa ritgerð sem ég þarf að skila aftur á morgun. Ég er að fara í síðasta prófið mitt á morgun kl.2 OG ÉG GET EKKI BEÐIÐ!! Önnin má alveg fara að vera búin bara. Svo kemur kellan á klakann á laugardagsmorguninn. Dagskráin er alveg full...Kem heim um 8...reyni að leggja mig í ca 2 tíma (ekki alveg viss um að það takist)...fer í kliððingu klukkan 1....reyni að kíkja á ömmu og systkini mín...svo er bara heim að borða, taka sig til, sulla nokkrum glösum í sig og kíkja á djammið!! Bottoms Up

En hey....verð að fara að læra. WISH ME LUCK!!!

Posted by kyr at 16.12.04 04:12
Comments
Post a comment









Remember personal info?