Jæja...mín er bara að fara á föstudaginn...eða á hnakkamáli eins og maður kallar það...kellinging er bara að fara!! *lol* Þetta frí er líka alveg að verða gott. Heill mánuður að gera ekki neitt...ekki alveg að gera sig. hahaha. Ég er alveg með njálg...get ekki verið að gera neitt svona lengi!
En helgin já....endaði með Mörtu á Traffic í Keflavík....haha....hitti gelluna sem býr fyrir ofan mig og endaði með því að spila pool allt kvöldið ;) Það var bara fínt.
Á laug kíkti ég með stelpunum til Jónínu...þar var hellt aðeins í sig og haldið á Nina Sky á Broadway. Þar voru bara allir mar...Sara, Ragga, Brynja að dansa auðvitað, Marta, Birna, Jenný, Svala....og bara allt liðið!! Nina Sky voru bara að gera ágæta hluti. Afslappaðar og svalar gellur bara. Svo voru náttúrulega AntLew & Maximum. Brynja mín og Peanut voru svo að gera góða hluti í dansinum. Við vinkonurnar mættum náttúrulega beint fyrir framan sviðið og byrjuðum að garga "GO B GO GO GO B"!!!! HAHAHAHA. Gellan bara komin með aðdáendahóp!! ;)
Svo fór ég á Akureyri á mánudaginn. Ég og Marteinn bró tókum okkur 6 tíma í að keyra norður!! Aðalástæðan var nú að ég var að fara í stúdíó :D Var að taka upp lag f 2 gaura sem á víst að senda í Eurovision :P Sjáum hvernig það fer. Hehe.
En ég verð að fara að halda áfram að pakka...þetta er í fyrsta skipti sem ég er byrjuð að pakka 2 dögum áður en ég fer!! Lol. Nenni bara ekki að gleyma öllu eins og alltaf!!
Butt Æm Át Jó!!!
Posted by kyr at 12.01.05 22:38