Dear Ms. Oskarsdottir
Congratulations on an outstanding fall semester. In recognition of your academic achievement, you are being named to the University Studies Distinguished Scholars List. ( This is the equivalent of a school or college Dean's List.) This honor will be noted on your official University transcript.
Þetta lá í póstkassanum þegar ég kom út aftur :) Ahhh....stundum borgar sig að vera dugleg í skólanum :D En samt vilja þeir ekki gefa mér NEINN skólastyrk...en við sjáum hvernig þessi önn fer. Kannski er hægt að tala þá eh til :P
Annars er bara allt gott að frétta héðan. Búið að snjóa hérna....en kanarnir eru alveg ÓTRÚLEGIR!!! Það snjóar smá og fólk klessir á hægri vinstri...svo eru aðrir sem þora varla út úr húsi!! Það átti að vera eh svaka snjóbylur um daginn...ég held það hafi snjóað svona 15cm!!! *lol* Fólk er svo fyndið...hélt það væri kannski ekki skóli!!
Já talandi um skólann...úff....tímarnir eru ekki alveg að gera sig!! Er í tíma sem heitir "American literature". Kennarinn minn er kannski 2 árum eldri en ég, og hann túlkar öll ljóðin og sögurnar sem við erum að lesa á kynferðislegan hátt....held hann sé eh "Sexually frustrated" bara sjálfu!! *lol* Greyið...
Svo er aukakennarinn minn í sögu bara yngri en ég....ég veit það er kannski auðvelt fyrir aðra en að hafa eh að kenna mér sem er yngri en ég er frekar erfitt.....aukakennararnir í stærðfræði eru öll svona ung líka....æ....mér fiinst bara asnalegt að spyrja eh barn hvernig ég á að vinna....sérstaklega í háskóla!!! *lol*
But anyways....talandi um skóla....ætli ég verði ekki að fara að klára heimavinnuna fyrir morgundaginn ;)
Holla at ya later!!!
ONE...