febrúar 24, 2005

Allt fyrir listina...

Já gott fólk....það sem maður gerir ekki fyrir listina!! Ég er byrjuð í píanótímum í skólanum...og þiðgetið rétt giskað hvað ég þurfti að gera.....já dömur mínar og herrar.....neglurnar fuku!!! *lol* Mér fannst ég hálf allsber þegar hún klippti þær fyrst....en þetta er ágætt :P

Annars er allt gott að frétta. Gengur bara svona ágætlega í skólanum. Er að fara í 4 próf í næstu viku þannig ég verð að halda nefinu í bókunum næstu daga! Svo er ég að fara í inntökupróf f söngdeildina á laugardaginn. Er svona nett stressuð!! Ég frétti svo í gær að það eru ca 40% af umsækjendum sem komast inn....mér leið ekkert betur!! *lol*

En svo er ég í fríi 4-13 mars!! Ætlaði að reyna að komast eitthvað í burtu en ég er ekki að sjá að buddan eigi eftir að leyfa mér það þannig ég chilla bara á sófanum ;) Ekkert verra!! hahahaha

Svo er ég búin að vera GEGGJAÐ dugleg í ræktinni, sérstaklega síðustu viku. Er með harðsperrur í vöðvum sem ég vissi ekki að væru til!! hahaha. En það er bara gott er það ekki?? ;) Merki um að maður sé að taka almennilega á því!!

En ég verð að fara að lesa fyrir sögutímann mar!!
WISH ME LUCK!!

I'm out....peace y'all...

Posted by kyr at 24.02.05 00:21
Comments
Post a comment









Remember personal info?