Kanarnir eru alveg að gera útaf við mig!! Þetta er alveg dramatískasta þjóð sem ég hef nokkurtíma séð!!! Það er alveg ca 3-4 cm af snjó úti og allt bara lamast!! Rétt byrjað að snjóa og allir sendir heim úr skólanum (grunnskólar)....komnir 3 cm og allir háskólar lokaðir....!!!! Það snjóar hérna á hverju ári þannig það fyrsta sem þetta lið þarf að læra er að SETJA VETRARDEKK Á BÍLANA svo þau klessi ekki á allt hægri vinstri við minnsta frost...svo þegar það snjóar bent niður ÞÁ ER ÞAÐ EKKI STORMUR!!! Lol. Úff....þá er ég búin að ná því út!!
Þetta er ekki alveg minn dagur!! Ég er að fara í inntökuprófið á laug og er að míga á mig úr stressi....þá er söngtímanum mínum frestað VEGNA 3 CM SNJÓ!!! svo gleymir vinkona mín tónfræði bókinni heima sem hún ætlaði að lána mér svo ég gæti farið yfir þetta f inntökuprófið (hún býr um kl tíma í burtu þannig ég er ekki alveg á því að fara að ná í bókina....en enda samt ábyggilega með því!!)....svo ætlaði ég að fara á bókasafnið að leita að svona bara byrjenda tóinfræðibók til að lesa smá....en nei...þá er ekkert svoleiðis til......svo á ég eftir að læra fyrir 4 próf fyrir næstu viku!!! Úff....en þá er ég loksins komin í viku frí!!
En annars er bara allt gott að frétta :D lol. Bara búið að vera langur dagur....held að ég ætti bara að fara að drífa mig í rúmið og hætta að stressa mig á þessu öllu!!!
WISH ME LUCK!!!...eða öllu heldur BREAK A LEG!!! :P
Posted by kyr at 25.02.05 05:06