mars 10, 2005

Alveg löt...

Ég er búin að vera í fríi í skólanum þessa vikuna...átti náttúrulega ekki pening til að fara neitt þannig ég er bara búin að vera í leti heima! Nenni engu! :P Vakna bara um hádegi og eh....er reyndar búin að vera dugleg að fara í gymið (eða ræktina eins og flestir íslendingar kalla það) :P

Annars er lítið að frétta. Er að fara í inntökupróf fyrir University of the Arts 19 mars.....er farin að verða soltið stressuð...en við sjáum hvenig þetta fer allt. Er ekki ennþá búin að heyra neitt frá tónlistardeildinni hérna.

Annars er búið að vera SKÍTAKULDI hérna. Fór reyndar upp í ca 15C um daginn...en datt niðurfyrir frostmark daginn eftir og byrjaði að snjóa aftur!! Ég er ekki alveg sátt við þetta sko....á að vera komið vor hérna!! Ég er alveg til í að fara að pakka úlpunum mínum og fara að ganga í sadölum!! *lol* Sé það samt ekki ske alveg strax.

En ég ætla að fara að koma mér út í búð....ekkert ætt til í kotinu!! :P

Lata!!

Posted by kyr at 10.03.05 20:51
Comments
Post a comment









Remember personal info?