mars 28, 2005

Gleðilega Páska :)

Vill bara byrja á því að óska Hildu frænku og Ingvari til hamingju með brúðkaupið!! Hilda frænka mín (dótti systir hennar mömmu fyrir ykkur sem þekkið hana ;) var að gifta sig í gær! Alveg fúlt að ég gat ekki komið :( En ég knúsa ykkur bæði þegar ég kem heim!!:D

Vá....ég var að fá bréf í póstinum....
"Dear Katrin: It is our privilege to inform you taht you have been nominated for membership in The National Society of Colligate Scholars (NSCS) - the honor society for high achieving first and seond year students" Veit reyndar ekki hvað þetta er almennilega en þetta hljómar mjög vel :D Það semsagt borgar sig að leggja hart að sér!! Hehe. Honors listi, þetta...mar bara VIP ;)

En annars er lítið að gerast hérna....Öll plönin sem ég hafði til að reyna að troða mér inn í almennilega Páskamáltíð eh staðar mistókst alveg....Ætlaði til John en hann var kallaður í vinnu....Ákvað að fara til familíunnar sem ég var að vinna hjá en þau voru ekki heima....ætlaði þá með Siggu til ömmu hans Matt.....en missti af strætó!! *lol* Þannig ég slappaði bara meira af :D

En svo er farið að styttast í það að ég komi heim. Vá.....þetta er ekkert smá fljótt að líða...2 mánuðir og ég bara komin heim. Er komin með mína 9-5 vinnu hjá bankanum...Ætti að vera fínt bara. Fæ að vera í Háaleitinu eins og ég vildi þannig...I'll be good.

En jæja...best að halda áfram að læra....reyna að halda þessu einkunum uppi ;)

Holla at ya girl!!

Posted by kyr at 28.03.05 04:13
Comments
Post a comment









Remember personal info?