apríl 01, 2005

NEW YORK HERE I COME!!

Oh...ég er alveg farin að hlakka til!! Brina vinkona og Linda eru í NY hjá Óla bróður hennar Birnu...ég verð nú að fara að hitta þær fyrst þær eru á landinu!! Gott líka að komast aðeins í burtu héðan. Næ líka kannski að hitta Lamont og svona. Gotta catch up with the friends ;) Ætla að hoppa í rútuna á morgun eftir skóla, kíkja á djammið í NY og reyna svo að draga stelpurnar að skoða Frelsisstyttuna á laug. Alveg fyndið að ég hef farið til NY....ábyggilega 10 sinnum og aldrei séð þessa blessuðu styttu!!

Annars er allt að gerast þennan mánuðinn!! Var í "audition" fyrir "Temple Idol" í gær, fæ að vita eftir ca viku hvort ég komist inn í það. Ætla svo að fara með Varian vinkonu í annað 'audition' fyrir eitthvað talent show hérna á Campus. Svo er karaokee keppni í "The Draught Horse" (bar) apríl....verð að fara þangað því vinningurinn er peningur!!! ;) Svo er ég að fara á tónleika með Alicia Keys og John Legend 10.Apríl og Aðra með Nelly 16.Apríl. Þannig það er allt að gerast!!

En best að fara að koma sér í rúmið...þarf að vakna snemma og klára að læra heima!!

Peace out y'all!!

Posted by kyr at 01.04.05 04:28
Comments
Post a comment









Remember personal info?