Kellingin búin að vera eitthvað slöpp við að blogga....það voru próf og fluttningar og eitthvað þannig þið verðið að bara fyrirgefa mér...
En hvað er að frétta í stuttu máli....
- Búin í prófum
- Fékk A, A, A, A-, B+ og B+ (FREKAR sátt)
- Komin með vinnu í LAndsbankanum (fínt að vear 9-5)
- Búin að kaupa mér bíl!!!
Já...viti menn...haldið þið ekki að Katrín Ýr, 23 ára hafi ekki bara loksins keypt sér sér bíl!! Náði mér í þennann fín VW Golf, 1995 árgerð. Þurfti reyndar aðeins að láta krugga í honum til að láta laga hann....en núna er hann bara líka svona þægur!
En annars er voða lítið að frétta. Ég er búin að lofa mér og öðrum að núna verð ég dugleg að blogga. Ég vinn fyrir framan tölvu allan daginn þannig ég hlít að geta fundið tíma til að láta ykkur vita hvað er í gangi hjá mér ;)
Annars er alveg eins gott að pósta það hérna...ég er komin heim...og verð hér í haust. Ég er með 3.75 Grade point average í skólanum úti (af 4.00 mögulegum) en þeir vilja samt ekki gefa mér neinn styrk eða neitt þannig að ég er bara komin heim. Er ennþá að reyna að ákveða mig hvað ég á að gera. Hugsa að ég verði í Söngskólanm og kannski í eins og 2-3 fögum í HÍ...annars veit ég ekki...
En ætli ég verði ekki að fara að sinna honum bróður mínum!! Hann Jón Bjarni er hérna hjá mér að horfa á Scooby Doo ;) Svo pöntuðum við okkur pizzu og ákváðum að hafa nammidag þannig það verður bætt á sig einhverjum kílóum í kvöld!!
I'm out!!!
Later gater...