júní 10, 2005

"Græna Þruman Teitur"

Jæja....þá er mín bara komin á nýjann bíl!! Ég verð nú að segja ykkur hrakfarir mínar og hans Brúmma (Rauði Golfinn sem ég keypti mér fyrir þrem vikum).
Sko...ég kaupi bílinn á föstudegi á Aðalbílasölunni í Skeifunni, á laugardagskvöldi þá ofhitnar bíllinn. Læt kíkja á hann á sunnudegi, þá er mér sagt að þetta sé líklegast vatnslásinn sem er bilaður en að það sé ekkert mál af því það kosti bara ca 3000 kall. Á mánudegi keyri ég bílinn í vinnuna og hann er allt í lagi, hringi í bílasöluna og hann fær ekki tíma á verkstæði fyrr en vikuna á eftir en segir mér að ef ég skil hann eftir á verkstæðinu gæti verið að þeir nái að gera við hann ef einhver sem á tíma kemur ekki. Á föstudagsmorguninn fór ég og skildi bílinn eftir á "Betri Bílar" í Skeifunni, eh voða fínt verkstæði viðurkennt af Heklu. Um eftirmiðdaginn er hringt í mig frá bílasölunni og verkstæðið sagði að ÞAÐ VÆRI EKKERT AÐ BÍLNUM MÍNUM!! Ég var nú ekki sátt en fór að ná í bílinn eftir vinnu. Þá er mér sagt að það þurfi að skipta um tímareim!! Ég ekki sátt á leiðinni á bílasöluna að kvarta og þegar ég starta bílnum fer snúningshraðamælirinn upp í 4000 snúninga!! Ég náttúrulega drep á bílnum.....bíð aðeins....en þá skeður þetta aftur!! Þanni ég fer inn og segi við manninn að það sé VÍST EITTHVAÐ AÐ BÍLNUM!! Eina sem hann segir er "ef þetta skeður aftur koddu þá með hann"!!! Þannig ég fer á Aðalbílasöluna og fæ þá til að hringja í liðið sem átti bílinn og punga út úr þeim pening fyrir nýrri tímareim.
Á laugardeginum er ég svo að keyra heim úr vinnunni og bíllinn byrjar með þessi svaka óhljóð. Ég þori ekki að keyra hann og skil hann eftir hjá Laugarásbíói!!!Kem honum á verkstæði á þriðjudeginum til að láta skipta um þessa blessuðu tímareim...en NEIIIIIIIIII!!!! ÞÁ ER SJÁLFSKIPTINGIN BILUÐ OG KOSTAR MILLJÓN AÐ GERA VIÐ HANA!!! Þannig ég hringi BRJÁLUÐ aftur á bílasöluna og þeir loksins ná liðinu sem átti bílinn á fund á laugardeginum. Ég alveg að skíta á mig að þau vilji ekki taka bílinn til baka.....en þá mætir ein níræð gella og 2 dætur hennar....og ég fékk bara endurgreitt á staðnum.
ÚFF!!! ÞVÍLÍKT BASL!!!

Þannig ég byrja að skoða í blöðin og finn líka þennann fína BEINSKIPTA Golf árgerð 1997 og ekki sett á hann nema 290.000 kall. Enda með því að fá hann í gegnum skoðun og fæ 40.000 kr afslátt!!
Hann hlaut svo nafnið "Græna Þruman Teitur"!!

Þannig ég er alveg sátt núna. En ég er að segja ykkur. EKKI fara á verkstæði sem umboðin mæla með!! Þeir eru með samninga sín á milli og þeir eru ekkert að skoða bílana almennilega.....allavega mundi ég ekki mæla með þessum blessuðu mönnum á "Betri Bílum" eins og þeir kalla sig. Ekki alveg að standa sig sko....


En best að halda áfram að vinna.....ætla svo að njóta þess að gera EKKERT ALLA HELGINA!!!
Pís...

Posted by kyr at 10.06.05 14:02
Comments
Post a comment









Remember personal info?