Jæja....þá er komið að því....Ég, Jónas og Dabbi....eða öðru nafni hljómsveitin "Úranus" erum að fara að spila á Celtic Cross á Hverfisgötunni á fimmtudagskvöldið! Byrjum svona 11-11.30 þannig endilega að mæta ;) Tökum þessa helstu "cover" slagara :D
En annars er bara allt í pati núna....ekki búin að vera dugleg að blogga!! Eins og ég sagði ykkur síðast þá er ég komin á annanna bíl. Og já...ég er ekki að fara í HÍ í haust!! Ég ákvað að ganga aftur í barndóm og skráði mig á upplýsinga- og margmiðlunarsvið í Iðnskólanum í Reykjavík!! Verð í grunninum 2 annir og fer svo í ljósmyndun. Þetta verður stuð. Verð svo á 5 stigi í Söngskólanum í Reykjavík og vonandi að vinna í félagsmiðstöð (ef ég fæ vinnuna)....þannig það verður allt brjálað að gera!
Svo eru ég og Ingibjörg að leita okkur að íbúð. Gengur svona upp og ofan....ekkert allt of mikið að finna og þegar við finnum eitthvað þá er það farið á nóinu!! en við hljótum að finna eh.
Já....og svo er konan bara búin að kaupa sér kort í ræktina. Tími til komin að fara að hrista af sér spikið!!! :D
En jæja....tími til að fara að sofa!! Ekki gleyma Celtic á fimmtudaginn ;) Later!!
Posted by kyr at 28.06.05 22:55