júní 29, 2004

Talblogg


#
Talskilaboð sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

Posted by kyr at 06:53 EH | Comments (68)

júní 28, 2004

Örblogg

OJ! Eg er i straeto og gaurinn fyrir framan mig er ad bora svo svakalega i nefid ad eg kugast! Svo skodar hann slummurnar og klinir theim i saetid!! OJ BARA!

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

Posted by kyr at 06:24 EH | Comments (3)

52 DAGAR!!!! :D

Já dömur og herrar, í dag eru 52 dagar þangað til að ég fer út!! Vá....it's all becoming reality!!! Mig er farið að hlakka ekkert smá til!! ÉG fæ reyndar ekki aðp flytja inn fyrr en viku eftir að ég kem, en ég hlít nú að fá að gista hjá einhverjum af þessum vinum mínum þarna ;) Ég hringdi og var að spurja hvort það væri ekki sjéns að fá að flytja inn aðeins fyrr en....hún sagði bara að það væri verið að reyna að flytja innflutningsdeginum það færi allt eftir því hvernig fer að byggja þetta!!! JÁ TAKK!! Þetta er allt bara glænýtt :D Þið getið tjékkað á þessu á heimasíðunni þeirra

...næsta mál á dagskrá....FAME...

Ok...ég er kannski enginn "pro" en ég get nú ekki sagt allt of marga góða hluti um þessa blessuðu sýningu. Ég verð nú að segja að þetta er bara svona eins og "average" menntaskóla sýning. Sko...í fyrsta lagi....tónlisting....WOW!! Sorry en Barði og Margrét Eir ættu að geta betur en þetta!! Hvað er málið með að láta Álfrúnu syngja 2 sóló lög...með engan annann á sviðinu....og í ALLT OF hárri tóntegund?!?! Fainting Leikurinn er nú í lagi hjá henni svosum...samt alltaf eins og hún sé í "Stundinni okkar" að leika fyrir börnin.
Svo sorry en...Ester Thalia....er ekki alveg að gera góða luti að syngja "aðal" lagið! Hefði líka þurft að lækka tóntegundina fyrir hana!! Svo vantar líka allan kraft í hana...er eins hún viti ekki alveg hvað hún á að gera við sig á köflum í sýningunni. Vantar alla innlifun!!
Sveppi stendur sig bara ágætlega að vera bara hyper *lol* Alveg fyndið að heyra hann syngja!!
það er eins og þau einu 2 sem get almennilega sungið (Gummi og Jóhanna) fái varla að sýna hvað í þeir býr.
En annars held ég nú samt að þessi sýning eigi eftir að ganga vel. Ég held líka að markhópurinn sé sá sami og voru fastagestir á FB sýningunum hjá okkur hérna í "den". Ég er líka viss um að 10-15 ára stelpum sem vilja sjá Jónsa sinn og ungfrú Ísland sé alveg sama með öll aukahljóðin sem koma innanúr Smárakind...held það þurfi nú að hljóðeinangra þetta aðeins betur.
En ég ætla ekki bara að vera leiðinleg....dansarnig margir voru MJÖG góðir og fannt mér Sigrún Birna bera af hvað það varðar. Svo er fullta f fallegu fólki í þessari sýningu þannig þetta er ágætis afþreying Too Happy

Ég mæli samt alveg með að kíkja....en ekki samt búast við of miklu....

Posted by kyr at 03:48 EH | Comments (7)

júní 22, 2004

Pæling...

...hafið þið pælt í....að enginn af okkar"háttvirtu" forsetaframbjóðendum á íslenska konu?? Sara var að benda mér á þetta í gær....ef þið spyrji mig...þá vil ég bara fá Viggu aftur á Bessastaði!! Það er ekkert vit í þessu liði em er að reyna!! Hver er td þessi Baldur?!?! Þúst....hvaðan kom hann eiginlega?? Og hver eru málin sem hann vill berjast fyrir?? Er ekki alveg með á nótunum...spurningin er hvort maður skili bara auðu?!?! Very Confused

Svo er annað...hafið þið farið í sund nýlega?? ÉG var í sundi áðan....og ÉG SVER!!....

gamla konan í nuddpotinum var með klobbann á sér alveg á bununni!!Gross ...Hvernig væri nú að gera svoleiðis bara heima hjá sér....og þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég sé þetta!! But I keep going! Ég er búin að vera geggjað dugleg. búin að fara að synda 3 daga í röð. Markmiðið er að taka 1/2 kg af á viku þangað til ég fer út, þá er ég búin að léttast um ca 4 kíló, er þá u.þ.b. það sem ég var þegar ég fór frá USA Way Too Happy Get varla komið aftur mikið stæri en ég var þegar ég fór...

Já...ég fór í þetta blessaða viðtal í sendiráðinu í morgun...þurfti að bíða í 45 mín eftir mínu viðtali. Gekk svosum ágætlega. Ég fæ alveg áritunina en...mér finnst nú að gellan hefði mátt vera aðeins meora friendly!! Var e-h að benda á að ég sé nýbúin að vera úti á einu VISA....og að það sé alveg fylgst með því þegar fólk er að reyna að vera í USA eins lengi og það getur...ég ákvað að hlusta bara og segja ekkert en...ef ég hefði ekki vitað að hún gæti sagt nei þá hefði ég sko sagt e-h...það er ekki eins og allir í heiminum vilji búa í USA alla ævi!!!

Anyways....I'm out....Peace....

Posted by kyr at 07:44 EH | Comments (29)

júní 21, 2004

Fallegi maður!!

Pharrell.jpg

Ég sit hérna að horfa á Jay Leno og N*E*R*D er hjá honum....mikið SVAKALEGA er Pharrell Williams getnaðarlegur!! Mér fannst það ekki fyrst....en GOD DAMN...hann er orðinn e-h svo mikill töffari...en smá nördalegur ennþá ;)

Anyways...ekki mikið að frétta. Svaf til 12.45 í dag!! Vá hvað það var gott. Fór svo í sund og synti. Jebb, mín er farin að hreyfa sig!! Ég er með narkmið að taka af mér hálft kíló á viku þangað til ég fer út....get ekki látið sjámig þarna miklu feitari en ég var þegar ég fór!! Svo er ég að fara í viðtal hjá sendiráðinu í fyrramálið. Gotta go to sleep.

WISH ME LUCK...

Posted by kyr at 11:42 EH | Comments (5)

júní 19, 2004

GET ME OUT OF HERE!!!

Ég er ekki að meika þetta vinna hérna um helgar....eða jú jú. Þegar það er e-h að gera er það fínt, hitti fult af útlendingum en þegar það kemur enginn....þá er þessi vinna ekki að gera góða hluti. Er bara hérna að surfa netið og e-h....Hefur e-h góðar hugmyndir til að stytta mér stundir??

HOLLA AT YA GIRL!!! ;)

Posted by kyr at 02:41 EH | Comments (0)

júní 14, 2004

Ekki besti dagurinn...

Ég sit hérna í vinnunni hálf lasin. Ég var hálfslöpp í síðustu viku en svo lagaðist það, var bara með smá kvef....en kvefið í dag er EKKI að gera góða hluti. Ég hljóma eins og lítill strákur í mútum!! Ef ég þarf að fara upp á háu tónana þá heyrist bara ekki neitt!! En við skulum vona að þetta lagist. Kúnnarnir glápa bara á mig....heyra varla í mér :P

En helgin...á föstudaginn gerði ég nú ekki mikið....María kom með Karen Lilju. Hún var að fara á e-h staffa djamm, þannig ég sagði henni að ég skildi fara í mömmó :) Svo kíkti Birna og ég skreytti á henni neglurnar í staðin fyrir flétturnar sem hún gerði í mig :)

Á laugardag...

...þá vaknaði ég um 9.30, alveg i panik, hélt að Karen væri löngu vöknuð...en ég þurfti að vekja hana klukkan rúmlega 10!! Þá kíktum við í Kringluna með Birnu. Marí a hringdi í mig klukkan rúmlega 11 og sagðist vera á leiðinni....ég sagði henni nú bara að slappa af, ég skildi bara hafa Karen lengur :) Það er alveg ótrúlegt hvað hún heldur að hún verði að vera komin fyrir 12 að ná í hana *lol*

Um kvöldið komu svo Jenny og Birna í mat. Sara eldaði þetta líka dýrindis pasta handa okkur. Svo dunduðum við okkur bara að gera hárið á hvor annarri....vöffla, krulla og flétta *lol* Svo komu Brynja og Ragga....og á endanum komu Gai, Natasha og e-h 2 vinir þeirra.
Þaðan var tekin taxi niður á Hlemm því við Sara ætluðum okkur að rölta Laugara :) Þar hitti maður margan manninn....Jón Risa, Magga mús ofl.

Við stoppuðum við á Vegamótum. Þar hitti ég litla bróður hans Óskars. Við stoppuðum stutt þar og röltum á Celtic Cross að kíkja á Magga og Halla. Þar var rétt stoppað og drukkinn einn öl (eki það að megnið af mínum hafi bara farið í gólfið því jafnvægið var ekki alveg upp á sitt besta). Eftir það röltum við á Felix. Þar hittum við Tinnu, Áróru og kallinn hennar. Sjaldséðir hvítir hrafnar segi ég nú bara :P Svona eru þessi "hjón". Eftir Felix komum við við í Bitabílnum og fengum okkur einn feitann hjá Jenný :D Eða réttara sagt át ég helminginn af borgaranum hennar Söru :P

Þá endaði röltið á Opus. Jesús Gvuð!! Það voru einhverjir gaurar fyrir framan okkur....svona 18 ára!! Ég náttúrulega varð að commenta á það við dyravörðin að þeir væru nú svona í yngri kantinum til að vera inni á skemmtistöðum...en þá segir hann mér að það sé 18 ára inn!!! WHAT THE F%$#?!?!?!! Er það löglegt?? Það hlaut e-h að vera að þetta væri eins og útskriftarball 10 bekkinga í grunnskóla Selfoss!!! En hvað um það!! Ég var í fíling þannig...ég fórbara að dansa!! Man varla hvern ég sá eða hitti....var bara í mínu "zone" á og við dansgólfið :D Svo á endanum skutluðu Rubin og Papus okkur Söru og Röggu heim.

Það má segja að þegar ég vaknaði fyrst á sunnudagsmorgninum hafi ferskleikinn ekki alveg verið í fyrirúmi....en það er ekkert sem 1-2 verkjatöflur, hamborgari, franskar og Diet kók gátu ekki lagað :D

En...gotta get back to work. Þarf að fara að hlaupa í mat :)

Later peeps!!

Posted by kyr at 01:22 EH | Comments (85)

júní 09, 2004

I know I know

Ég veit ég er búin að vera alveg léleg að skrifa á þessa síðu. En nú batnar það! Ég var bara EKKI að nenna að koma nálægt tölvu í fríinu!

Eins og kannski flestir sem ég þekki vita tók konan sér bara 9 daga frí frá ALLRI vinnu og fór til útlanda. Ég flaug til Amsterdam, var þar yfir dag og tók svo flug til mömmu í Bristol. VÁ hvað var gott að sjá mömmu...eða það litla sem ég náði að halda henni hjá mér. Það er ekkert lítið sem konan vinnur. Svo ef hún er ekki á skrifstofunni þá er hún í símanum. An allavega....

ég skemmti mér mjög vel. Fyrstu 4 dagana gerði ég EKKERT nema labba! Labbaði þenna blessaða "bæ" þveran og endilangan mörgu sinnum. Svo átti ég líka ALVEG BÁGT með mig...það eru skóbúðir ALLSTAÐAR!! *lol* Og allar ódýrar!! Ég endaði nú með því í allri ferðinni að kuapa mér 4 pör....en þau vöru öll´um eða undir 2000!! Svo mikill bargain shopper ;)

Eins og ég sagði, hjá mömmu gerði ég lítið annað en að labba, taka myndir, skoða í búðir (og versla smá). Ég reyndar náði mömmu með mér í fótsnyrtingu. Alveg furðulegasta fótsnyrting sem ég hef farið í! Hún notaði kornakrem, maska, olíur og allt eh svona voða fancy...en hún raspaði ekki á mér lappirnar!! Og hreinsaði ekki skítinn hjá nöglunum þannig....ég var næstum alveg jafn skítug og þurr og þegar eg labbaði inn *lol* :P En þetta var voða þægilegt.

Annað kvöldið mitt kíkti ég líka ein á pöbba/klúbba rölt. Það var alveg ágætt bara. Held ég hafi endað með að fara inn á ca 4 staði. En 3 kvöldið mitt (mánudag minnir mig) þá hringdi mamma í mig og sagði að það væri e-h flugfreyja sem langaði svo að kíkja út, þannig ég sagði henni bara endilega að senda hana heim, ég mundi kíkja með henni....fattaði náttúrulega ekkert að spurja hvað hún héti eða hvað hún væri gömul!! En hún heitir Heiða og er...25...26...e-h svoleiðis. Við skemmtum okkur mjög vel á Brannanigans....held ég að staðurinn heiti. Þið getið líka kíkt í myndaalbúmið. Svo er líka eitt sem þið sjáið á allavega einni myndinni....í Bretlandi er ALLT Í LAGI að vera með bumbuna úti. Gellur sem eru svona 3x ég eru í fötum sem ég mundi ekki láta sjá mig í!! Ég reyndar spurði 2 stráka sem ég hitti hvort gaurum þætti þetta í lagi...en svo er ekki. Samt er eins og flestar af þessum gellum séu með gaur!! ...annar skil ég þetta ekki....

Ég kíkti líka einn daginn til Bath, sem er lítill bær rétt hjá Bristol. Það er geggjað flott þarna. Gömul geggjað flott hús. ÞAr var gönguferðin mín nálægt 3 tímum!! En ég var ekkert að fatta hvað ég var lengi að labba. Endaði náttúrulega með því að týnast og svona, bara eins og mér er einni líkt. En ég rölti bara áfram þangað til ég fann miðbæinn aftur. Ég hringdi líka í mömmu og sagði henni að hún VERÐI bara að fara þangað sem fyrst. Þetta er alveg fyrir hana. Fullt af svona litlum götum, kaffihúsum og litlum búðum. Minnir mann svolítið á Frakkland.

En eftir næstum 6 daga í Bristol flaug ég til Amsterdam. Þar tjékkaði ég mig inn á "The flying Pig" hostel í miðbænum. Fór svo og hitti Sönnu. Sanna er gella sem ég er búin að vera að spjalla við á MSN í svolítin tíma. Fín gella. Við röltum bara um, fengum okkur að borða og svona. Fórum svo á hostelið mitt og gerðum okkur til fyrir Jazzy Jeff show á Paradiso. Þegar okkur var loksins hleypt inn þar varð ég fyrir frekar miklum vonbrygðum. Við komum um 12, og Jazzy átti ekki að koma fyrr en 2....sem var svosum allt í lagi.....fyrir utan að "upphitunin" var DANSTÓNLIST!! JÁ TAKK!! Ég sat þarna í 2 tíma að hlusta á danstónlist!! En þegar kallin kom loksins á kom hann með hvern slagarann á eftir öðrum!! Ég náttúrulega dansaði "af mér rass***ið" eins og mér einni er lagið :) Svo var ég komin í svo mikið stuð að ég bara dansaði við danstónlist í ábyggilega hálftíma!! Svo eins og mér einni er líka lagið var ég ekki komin á hostelið fyrr en 8-9 morguninn eftir!! Þá lá Sandra vinkona frá Þýskalandi í rúminu mínu. Hún hafði komið með rútu fyrr um morguninn. Þegar ég kom fór hún og fékk sér að borða og eh á meðan ég lagði mig í 3 tíma.

Á laugardeginum gerðum við mest lítið. Ég og Sandra (hún var með mér í USA) röltum bara um, fórum á flóamarkað, kíktum í búðir og svona. Um kvöldið röltum við svo um rauða hverfið og svona. Ætluðum að kíkja á Ministry sem er svona r'n'b klúbbur....en Sandra var ekki á að hlusta bara á r'n'b allt kvöldið þannig ég gafst upp og fór með henni á einhvern svona "blandaðan" klúbb. VÁ!!!! ÞAR VAR ALVEG LEIÐINLEGT!! Í fyrsta lagi var þetta eins og breta nýlenda. Ég sá bara 1 sætan strák (sem var svo ekki sætur svona "up close")...og ég gafst upp eftir að heyra "Summer of 69" og "Like a prayer" í eh 80´syrpu!! Þá var alveg tími til að fara heim.

Sunnudagurinn var svo letidagur. Fórum í smá túrista siglingu um Amsterdam, kíktum á klámsafnið. Ætluðum að fara og sjá Önnu Frank húsið (ég í annað skipti) en ég var ekki alveg á því að bíða úti í röð, í rigningu í 2-3 tíma. Þannig Sandra ákvað að fara bara á mánudeginum. Þá héldum við bara upp á hostel. Kvöldinu eyddum við svo bara í að fá okkur að borða, rölta um og skoða rauða hverfið og fá okkur öl. Svo vorum við farnar að sofa bara um miðnætti.

Rétt um hádegi á mánudeginum fór ég svo upp á flugvöll og hélt heim. Það var ekkert smá gaman að sj´aSöndru aftur!! Mig langaði bara ekkert að fara heim...but....had to go back to reality!

VÁ!!! Engin smá ritgerð!!! Ég vona að eh nenni að lesa þetta allt!! Ég lofa að vera svo duglegri við að skrifa!!

ÆM ÁT!! PÍS! ;)

Posted by kyr at 11:57 FH | Comments (64)

júní 05, 2004

Ljóð...

Ég fann þetta á netinu....makes some sence to me...

“TRUE LOVE"

Fanatasies will finallypass away,
And,crushes may last for only a day.
Song birds won`t alwaysbe able to sing,
But,true love is an everlasting thing.

There`s so many things that have passed me by,
There`s so many fads that have caughtmy eye.
While most of my plans have fallenapart,
Your love will always remain in my heart.

Wonders of the world have crashed to the sea,
What we thought "always", will no longer be.
What we once saw glimmer,now,seems to fade,
But,the love that we shared will never jade.

Anxieties pass,and,we don`t know why,
Sadness leaves us,and,we no longer cry.
Pain and suffering soon becomethe past,
But,love is one thing that will always last.

Legends will,some how,just crumble and die,
Myths are forgotten,like rain from thesky.
I can`t remember this last year`s rap star,
But,in love forever is what we are.

Now,you might say that it can not be so,
But,deep in your heart,you will always know.
Although there`s another that holds your hand,
Our love is infinite,like grains of sand.

When life`s not peachy,but,instead,a dare,
When you think that it`s a bad day for hair;
If you ever wonder "which way is where",
Look to your heart,and,I`ll always be there.

Posted by kyr at 03:33 EH | Comments (59)

Talblogg


#
Talskilaboð sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

Posted by kyr at 12:06 FH | Comments (63)

Talblogg


#
Talskilaboð sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

Posted by kyr at 12:00 FH | Comments (26)

júní 04, 2004

Talblogg


#
Talskilaboð sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

Posted by kyr at 11:59 EH | Comments (46)

Örblogg

Check 1 check 2

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

Posted by kyr at 03:18 EH | Comments (28)

júní 03, 2004

NÝJAR MYNDIR!! :)

Það eru komnar inn nýjar myndir frá ferðinni út ;)

Bloggið kemur soon......

Posted by kyr at 07:09 EH | Comments (191)