júlí 30, 2004

Pæling...

...ég var að pæla í einu....ég vil endilega fá smá comment frá ykkur sem lesið þetta...

...segjum sem svo að þið eigið ágætis vin/vinkonu. Ekkert svona hanga saman alla daga, en þúst...svona sem þið treystið. Svo gerir hann/hún eitthvað á ykkar hlut sem særir ykkur rosalega.....og ekki bara einu sinni heldur non-stop í 2-3 ár. Þið gerið allt í ykkar valdi til að láta hann/hana hætta þessu en ekkert gengur. Svo allt i einu einn daginn kemur manneskjan og bara....getum við ekki bara verið vinir??

Hvað á maður að gera?? Fara og gera allt í sínu valdi til að vera jafn vond/ur / leiðinleg/ur og hann/hún var svo þau viti hvernig það er þegar e-h særir mann svona?? Eða bara segja ok.....let's be friends??

Leave a comment...

Posted by kyr at 01:15 EH | Comments (235)

júlí 27, 2004

Vá....

23 dagar.......23 dagar.....ÞAÐ ERU BARA 23 DAGA ÞANGAÐ TIL ÉG FER!!! Djís....þetta er bara allt að skella á Wakka Wakka

Anyways....hvert var ég komin í gær...

fimmtudagurinn...loftbelgjaferðinni frestað Teary. ÞAnni ég fór á e-h stað em heitir Revolution að hitta Steve og Gústa (þeir vinna fyrir mömmu). Þar sátum við úti að drekka öl og e-j þegar ég rek augun í auglýsingu sem var hjá klúbbnum á móti að DJ Quest DMC champion 2003 væri að spila þar um kvöldið. Ég og strákarnir löbbuðum aftur heim og náðum í Martein. Þegar við komum inn á klúbbinn voru svona 10 manns þar inni og kl tími í DJ-inn. Þannig við ákváðum að kíkja með e-h gaurum á "Arc bar", bara fínt þar, minnti mig soltið á Prikið í Sólon fíling. Pínulítið þar sem allir þekktust en alveg skrítin hönnun þarna inni og alveg geggjað skrítin samblanda af tónlist. Svo kíktum við aftur á DC Quest en þá voru komnir kannski 20 manns þarna inn...sem hefðu betur sleppt því að koma. ÞEtta var eins og einkapartý uppi á sviði með 15 manns að horfa á....og engir almennilegir DJ taktar....þannig við fórum bara. Hittum Steve og Gústa fyrir utan (týndum þeim fyrr um kvöldið. Marteinn fór með þeim á e-h "After hours underground club" en ég fór bara heim.
Á föstudeginum var ekki mikið gert. Mamma mætti í vinnuna um morguninn þannig ég fór bara á röltið í bænum, hitti svo Martein og við fórum upp í vinnu til mömmu um 3 leitið. Kl 6 mættum við svo samviskusamlega í loftbelgjaferð (fengum nýtt flug) Smile en þá var henni frestað líka vegna veðurs Depressed Þannig við fórum bara heim aftur að chilla og glápa á imbann.
...

...á laug vöknuðum við svo öll bara e-h um hádegi. Stefnan átti að vera í dýragarðinn en mamma var í e-h krísu af því e-h flugmaður var ekki með straujárn til að strauja skyrtuna sína og var að fara í flug...þannig við enduðum bara með því að fara í PC world (búð) og e-h. Ég og mamma kíktum svo í Bowling. Það var geggjað gaman, mamma hafði ekki farið síðan 1983 held ég, en hún stóð sig með stakri prýði. GO MAMMA!! Um kvöldið fór ég svo í bíó á Spiderman með strákunum, svo bara heim að lúlla.
Á sunnudaginn komumst við svo loksins alla leið í dýragarðinn Buggie. Þar vorum við allan morguninn þangað til við héldum upp á Heathrow. Við vorum mætt þar næstum 4 tímum fyrir flug!! Þannig ég horfði bara á Shrek 2 og Friends á fínu fartölvunni minni Smile.

Mánudagur var svo bara BACK 2 REALITY!! Mætt í vinnuna kl.10 og svona. Ég er að vinna alla daga og allar helgar þangað til 3 dögum áður en ég fer. STUÐ!! But u gotta do what u gotta do!!

It's all about the benjamins BABY!!! Bling-Bling

Posted by kyr at 11:56 FH | Comments (47)

júlí 26, 2004

I'm back!! :D

Jæja já....mín bara komin heim úr fríinu. Ég skrapp með honum bróður mínum til mömmu í viku, sem vara bara fínt. Má segja að maður hafi fengið smá "family overdose" *lol* Ég held að síðasta skipti sem ég eyddi heilli viku með mömu og Marteini hafi verið -'89 eða e-h, keyra hringinn með Bjarna Ara og Stuðmenn í botni!! ...

...anyways. Þetta var bara hið besta frí. Komum til London seint á mánudag, mamma "gamla" tók sig til og náði í okkur, svo héldum við aftur til Bristol. ÉG ætla nú ekki að drekkja ykkur í smáatriðum.
Þriðjudagurinn fór í að keyra e-h svaka krókaleið að skoða Stonehenge, og svo koma við í Bath á leiðinni til baka að skoða rómversku böðin. Svo var kíkt í kebab með samstarfsmönnum mömmu. Endaði svo á e-h bar með þeim öllum en dró mömmu heim, vara bara þreytt (líka frekar skrítið að vera með MÖMMU á e-h bar!! Rolling Eyes
Miðvikudagurinn var afslappaður. Kíktum aðeins í bæinn öll familían, fórum vo heim að elda því mamma var búin að bjóða öllu liðinu sem vinnur fyrir hana í mat um kvöldið. (ég þurfti að burðast með 3 læri, rauðkál og grænar baunir frá Íslandi), en það var alveg þess virði, GEGGJAÐ GOTT!! Kíkti svo aðeins út með crewinu um kvöldið.
Á fimmtudeginum áttum við svo að fara í loftbelgjaferð (MAMMA MÍN ER SNILLINGUR Smile) en því var frestað af því það var ekki veður.....

wow.....búin að vinna...rest á morgun...

Posted by kyr at 06:20 EH | Comments (5)

júlí 17, 2004

Which Ultimate Beautiful Woman are You?

Samkvæmt þessari könnun á ég bókstaflega að vera með gaura slefandi og skríðandi á eftir mér...er ég blind eða fara þeir bara svona nett framhjá mér *lol* Perplexed

Goddess
You are a goddess!


Which Ultimate Beautiful Woman are You?
brought to you by Quizilla

Posted by kyr at 11:24 FH | Comments (3)

júlí 12, 2004

LitlaMus.jpg

Hérna er nýji fjsk meðlimurinn It's A Girl

Posted by kyr at 09:33 EH | Comments (44)

TIL HAMINGJU!!!

Ég vildi bara droppa línu hérna og óska Hildu frænku minni og Ingvari manninum hennar til hamingju með stelpuna!! Baby Girl Hún fæddist í nótt 12/7 2004 kl:2.15!! Og eins og ég er búin að segja Ingvari þá erum við Stefán Gunnar búin að finna nafn á hana, hún á að heita Katrín Stefanía Smile

Posted by kyr at 05:12 EH | Comments (1)

Áttu smit?

Ég fór að sjá "smáleikritið" hennar Þórdísar, Áttu smit?, í Tónlistarþróunarmiðstöðinni síðasta fimmtudag. BIG PROPS ÞÓRDÍS!! Congratulations Á rúmlega hálftíma var maður hlæjandi, næstum grátandi, sá 2 stráka í sleik, sá 1...næstum 2 typpi (já stúlkur mínar....hún fékk 2 stráka til að fara bara úr ÖLLU!!!), og komst að ýmsu nýju í sambandi við "bug chasing" eins og það heitir á fallegri íslensku.

Í stuttu máli er þetta um strák sem er s.s. "bug chasing", en það er fólk sem er á höttunum eftir að smitast af HIV/AIDS. Ekki það að ég skilja AF HVERJU einhver sækist eftir að smitast af þessu, en það eru víst mismunandi ástæður fyrir því. Ef þið viljið lesa meira um þetta þá eru hérna nokkrir linkar með greinum/viðtölum um þetta:

http://www.rollingstone.com/news/story?id=5939950
(upprunalega fréttin um bugchasing sem olli fjaðrafoki um allan heim. Þessi grein er reyndar gölluð að mörgu leyti, en hún vakti athygli á málefninu)

http://www.baywindows.com/news/2003/01/30/Columns/Could.bug.Chasing.Be.More.Serious.Than.We.Want.To.Admit-356171.shtml
(þessi grein leiðréttir fyrri greinina, styður sumt og hafnar öðru. Skemmtilegt debatt.)

http://www.alternativesmagazine.com/15/hill.html
(Löng en mjög ýtarleg grein um bug-chasing útfrá sálfræðilegum, siðferðislegum og tilfinningalegum sjónarmiðum. Kafar dýpst.)


.....WOW!! Shock 2 Ég er í vinnunni að blogge hérna....lít ég upp og stendur ekki bara BJÖRK GUÐMINDS þarna beint fyrir framan nefið á mér!! Jesús, ég fékk alveg svona vægt grúppíu kast og langaði að biðja hana um áritun og bíða á meðan ég reddaði mér myndavél...em svo tók ég á honum stóra mínum, brosti mínu breiðasta og sagði bara "Góðan daginn" Smile Vá...æ þúst...það er alltaf ef maður fer e-h þá bara "Iceland....og yeah...Björk"!! Þannig...æ...ég sé aldrei svona frægt lið!! Það er ekki eins og ég sé e-h svaka fan eða e-h!! *lol*

En anyways....er farin að klára hérna í vinnunni.

Catch ya later!!

PS: Bara 7 og 38 dagar Sunshine

Posted by kyr at 05:08 EH | Comments (0)

júlí 08, 2004

OJ!!

ég er að segja ykkur það...það er eins og að það standi á enninu á mér "ef þú ert perri talaðu við mig"!!
Ég var að vinna á kaffihúsinu um helgina, var bara aö þrífa og e-h....labbar e-h gaur sem hafði verið að borða köku að mér og réttir mér servíettu og biður mig að henda henni....sem er ekki frásögu færandi nema ég lít á servíettuna...þá er gaurinn búin að teikna TYPPI á hana!! Svo þegar ég lít út þá er hann að glápa á mig.....svo fór hann!! OJ OJ OJ OJ OJ !!!! Ekki bara að þetta hafi verið typpi heldur var hann sko búin að teikna dropa leka af því líka!! Svo var mynd af e-h öðru sem ég veit ekki alveg hvað átti að vera. YAKK!! Þetta er ekki í fyrsta skipti sem e-h svona kemur fyrir mig. Þegar ég var að vinna fyrir nokkrum árum þá flassaði einn gaur mig....í vinnunni!! Flasher Hann sat bara í makindum með vininn hangandi út!!! STAY AWAY FROM ME!! En thank God þá fór hann líka.

en það er annað sem mig langar að tala um....fólk sem fer ekki í sturtu nógu oft Vomit 2 ...og fólk sem þarf að þrífa á sér grillið (tennurnar fyrir ykkur sem ekki skiljið Smile ...

...ok...ég vinn við "þjónustustörf" svona eins og fólk kallar það. Ég er í kringum mismunandinfólk allan daginn...og ég verð að segja að það er sumt fólk sem þarf ALVEG AÐ LÆRA AÐ FARA Í STURTU!!! Ég er að segja ykkur það!! Lyktin sem sumir framleiða...og sumir setja á sig. Mér finnst nú bara að fólk ætti að sýna manni smá virðingarvott með því að sturta sig og bursta í sér tennurnar áður en það kemur. Það var einn gaur hérna í gær sem ég átti alveg bágt með að tala við því það var svo mikil svitafýla af honum....svo á eftir kom e-h gella sem var með svo mikið ylmvatn (og alveg vond lykt í ofan álag) að ég þurfti að hafa gluggann opin í 10 mín til að lofta út!!

WOW....sorry...ég veit þetta er ekki skemmtilegasta lesningin en ég bara VARÐ að koma þessu út!!!

Gotta go to lunch....

Leiter ;)

Posted by kyr at 11:52 FH | Comments (38)

júlí 05, 2004

Mr.Piggy :D

DSCF0056.JPG

Nýji vinur minn í Húsdýragarðinum :D

Posted by kyr at 08:39 EH | Comments (80)

júlí 03, 2004

Things that bugg me!!

Hlutir sem fara í taugarnar á mér....mismikið samt....

- Gaurar í Speedos
- Perrar að glápa á brjóstin á mér í sundi
- Strætóbílstjórar sem stoppa ekki
- Fólk sem kann ekki að setja saman föt...set mig hér með sem sjálfskipaða "tískulöggu" á Íslandi
- Allt of mjóar stelpur
- Fiskifýla
- Þotuliðið
- Gellan í Sendiráðinu
- Flugleiðir
- Hliðarspikið mitt
- Baktal
- Verðlag á Íslandi
- Forsetinn
- Þynnka
- Drama
- Frægir söngvarar sem geta ekki sungið
- Fólk sem setur þumalinn upp til að segja einn....maður Á BARA að setja vísifingurinn!!
- Strákar í allt of þröngum fötum...nema þeir séu "hýrir" þá er mér sama
- Að eiga ekki bíl
- George Bush
- EIGA EKKI PENING!!!

I could go on and on.....restin kemur seinns.
Endilega bætið við...

Posted by kyr at 02:05 EH | Comments (105)

YESSSS!!!!!

Klukkan er alvg að verða 2!!! :D Ég er í vinnunni og ér er ALVEG allt of þreytt. Ætlaði "aðeins" að kíkja út í gær....right!! Var náttúrulega ekki komin heim fyrr en 6....og mætti galvösk í vinnuna kl 10...ef þannig má að orði komast. Ég er í stríði við augnlokin á mér að lokast ekki bara!! Búin að fá mér Diet coke og súkkulaði, með opin gluggann og búin að blasta J-Hova (Jay-Z) í tækinu. Þetta ætti að vera nóg til að halda mér vakandi til 6!! ;)

Lærdómur dagsins: Í Hafnarfirði er til gata sem heitir Jófríðarstaðavegur! ;)

Posted by kyr at 01:43 EH | Comments (176)