Ég ætlaði bara að nota tækifærið og óska sjálfri mér til hamingju með daginn
Konan orðin 23 ára takk fyrir!! Það fer að glitta í hrukkur bráðum!!!

2 af vinum mínum finnst þessi mynd af mér gjörsamlega hörmung...mér finnst hún flott!! 
Hvað finnst ykkur??
Haldið þið ekki að konan hafi farið á fótboltaleik í fyrsta skipti!!
Mín mætti hress og kát, alein á Lincoln Financial field (það er völlurinn sem Eagles spila líka á), á laugardaginn. Mín ætlaði sko að sjá hið fræga "marching band" hjá FAMU (Florida A&M University).....en ég enntis ekki lengi. Ég sá þau í upphafi leiks, og líka hljómsveitina hjá Temple, horfði á fyrsta fjórðung af leiknum....svo var það búið *lol* ÞAð var grenjandi rigning og vindur....en ég fór þó 
Það eru fleiri myndir af leiknum og lúðrasveitunum á myndasíðunni minni. Svo eru nokkrar myndir af djamminu.
Verð að hafa þetta stutt núna, þarf að fara að læra.
ÉG var búin að gleyma að ég bloggað í flugvélinni þegar ég var á leiðinni til Philly......gat augljóslega ekki póstað þaðan...en hérna er það. Skrifað 19 ágúst 2004:
Úff.....jæja....þá er maður bara lagður i hann!! Vaknaði kl:7.30 í morgun ekki alveg að fatta hvaða dagur það var. Ég var mestan partinn búin að pakka.....en samt er þetta ekki að sökkva inn....ÉG ER AÐ FARA!!! *lol*
Eftir nokkrar heimsóknir og langa kveðjustund skutlaði Ragga vinkona hennar mömmu okkur mæðgunum upp á völl. Mín tók sig bara til og svaf alla leiðina....ég veit ekki hvaðan þessi þreyta kemur, búin að gera ekkert annað en að sofa, ætli þetta sé ekki stressið að koma út svona :P Þegar við loksins komum vorum við heppnar því það var eiginlega engin röð. Þegar ég tjékkaði mig inn kom mér það frekar á óvart að ég var ekki með nema ca 60 kg,....hélt það yrði nú e-h meira, en svo var ekki. Við tróðum okkur í gegnum öryggisgæsluna og héldum náttúrulega rakleiðis upp í “íslensku búðina” til að kaupa nammi :D Það er ekki hægt að yfirgefa landið svona lengi án þess að taka með sér allavega eins og mánaðarskamt af lakkrískonfekti, kúlusúkk og þristum. Ég og mamma chilluðum svo smá, fengum okkur einn kaffi og röltum svo út að hliði. Mömmu hlið vara bara við hliðina á mínu....já btw....mamma kom heim frá UK í nokkra daga til að fara í skírnina hjá Ísabellu Sól nýju litlu frænku minni og slappa aðeins af og var á leiðinni þangað aftur Ég settist svo niður aðeins og rölti svo að mínu hliði. Eftir ca 10 mín í röðinni kemur þessi gullfallegi maður og tautar með sér að það sé búið að seinka fluginu um KLUKKUTÍMA vegna “technical problems”. DAMN!! Ég var nú ekki alveg í stuði til að hanga þarna í annan kltíma.....flugvellir eru ekki það skemmtilegasta place að hanga á. En ég nældi mér bara í eins og 1 Corona og settist niður með geislaspilarann.
Jæja....
ca 45 mín seinna er farið að tjékka inn. Þegar ég sest svo niður í vélinni byrjar flugstjórinn e-h að tjá sig um að það hafi svo engin bilun verið.....bara þurftu að vera viss. I guess I can’t blame them for that. En auðvitað með minni heppni lendi ég við hliðina á einhverjum fornaldar kana. ÉG ætlaði nú ekki að fara að láta hann fara e-h í taugarnar á mér þannig ég setti bara upp heyrnatólin og ætlaði að fara að horfa á imbann....en þar sem ég er ALLTAF svona óheppinn í flugum þá heyrðist ekkert í blessuðu tólunum. Þannig ég fékk flugfreyjuna til að finna handa mér annað sæti. Þá lennti ég við ganginn við hliðina á e-h sextugum þjóðverjum.....ef þið þekkið mið vel þá kannski vitið þið að það er alveg takmarkað af þjóðverjum sem ég þoli...bara svona eftir reynslu mína yfir árin, en þessir voru bara hinir fínustu kallar. Tala varla stakt í ensku, þannig öll tjáning við mig og flugfreyjurnar fer fram í handabendingum og þessum 10 orðum í ensku sem þeir kunna ;) En þeir eru búnir að gefa mér nammi og allt so.....they aiight with me ;)
En ég sit hérna núna í vélinni alveg ekki að fatta það að ég er FARIN!! (þetta verður póstað á síðunni þegar ég kemst á netið). Frekar svona surreal að fara að hitta Nick, Ryan, Flo, Kelly.....og bara ALLA í kvöld. Ég lendi á BWI og hitti Nick þar í smá stund því ég keypti íslenskan vodka fyrir hann. Svo fer ég í lestinni til Philly þar sem Flo ætlar að ná í mig. Þaðan liggur leiðin heim til hennar til að droppa draslinu mínu og fara svo á “The wild onion” þar sem Ryan er að vinna til að fá okkur nokkra öllara eins og kananum sæmir best :D Svo er ágætisdagskrá hjá mér næstu daga.....redda einingunum, fá mér síma, fara á skólakynningu og í stöðupróf, flytja inn í íbúðina mína og kaupa allt sem mig vantar þar inn....og byrja svo í skólanum :D
En I*’ll keep u updated hvernig allt gengur og ég treysti á ykkur að kommenta hérna á síðuna og droppa mér skemmtileg e-mail með öllu slúðrinu að heiman ;)
From the skies I say I’M OUT!!
Jæja.....hvað er búið að ganga á síðan síðast....
Ég verð að segja ykkur frá tónleikunum sem ég fór á. Haldið þið ekki að konan hafi loksins komist á tónleika með Lil'Kim!!! Á svæðinu áttu að vera Kim, Swizz Beats, Cassidy og Styles P. Mín fór alveg með fiðring í maganum að kaupa mia fyrir mig og Malin (sænska au-pair vinkona mín
). Anyways...húsið átti að opna kl.7 þannig við mættum tímanlega kl. 7.30. Ekki margir mættir en allt í lagi. Við fengum okkur bara sæti og chilluðum......2 1/2 tíma seinna var farin að fara smá pirringur um mig þar sem showið átti að byrja um 8.30. Þá mæta á sviðið e-h no-name rapparaar og taka e-h 3 lög....sem var allt í lagi...ekki það að ég hafi skilið e-h af því sem þeir voru að segja. Þegar þeir voru búnir mætti "The Queen B" loksins á svið.....2 tímum of seint. Með henni í för er Swizz Beats...og svona 20 manns sem bara stóðu þarna....but I guess that's how these celebrities do it. Fyrsta sem hún gerði var að fá nokkrar gellur upp á svið til að taka þá í "Eagle" danskeppni. Fyrir ykkur sem ekki vitið þá er "The Eagle" ....."dansspor" sem felur í sér að beygja hnén.....og hrista rassinn allsvakalega. Eftir að allar gellurnar voru búnar.....helduru að verðlauning hafi ekki verið DEMANTSÚR ´r nýu úralínunni frá Kim!!! HOT DAMN!!! MÁ ÉG FÁ EITT!?!?!?
Anyways.....
þegar þetta var búið setti ég mig í stellingar að fara að loksins hlusta á drottninguna performera!! Nei nei.....gellan tekur 1/5 úr 2 lögum OG FER SVO!!!!!!!
WHAT?!?!?! BORGAÐI ÉG 42 DOLLARA TIL AÐ SJÁ E-H GELLUR HRISTA Á SÉR RASSINN?!?! Svo komu Styles P og Cassidy ekki.....og Swizz gerði ekkert!!!! Ég vissi ekki alveg hvert ég átti að fara ég var svo reið!!! Flestir ruku út til að drífa sig í eftirpartýið.....EN EKKI ÉG!!! ÉG VIL ENDURGREITT!!! Það voru ca 15-20 manns eftir þegar "showið" var búið.....alveg brjál. Og við enduðum með að fá endurgreitt!!
Ég veit ekki alveg hvar statusinn á aðdáun minni á konunni er lengur. Pldu í að auglýsa TÓNLEIKA.....OG TAKA EKKI EINU SINNI EITT LAG?!?!?! 
....ekki það að ég er ennþá að hlusta á diskana hennar.....en GOD DAMN skal ég ALDREI kaupa mér miða á "tónleika" með henni aftur *lol*
Það eru fullt af öðrum tónleikum að koma.....Roots, Usher, R.Kelly og Jay-Z: BEst of both worlds tour, Fat Joe með Trinu og Jadakiss, Twista og Ying-Yang twins....and we can go on and on!!
En....back to my homework....
Komið þið sæl dömur og herrar. Ég ´veit ég hef ekki verið allt of dugleg að blogga....en ég verð bara að viðurkenna að þa hafa bara aðrir hlutir verið í forgang.....BUT I'M BACK IN BUISNESS!! 
Ég nenni ekki að rekja alla söguna hingað til, en ég skal segja ykkur hana í stuttu máli...
Ég kom til PA 19 ágúst (finnst reyndar eins og það sé miklu lengra síðan....). Eftir mikið brölt og misskilning up pick up á flugvellinum dröslaðist ég í lest til Philly. Kíkti til Ryans í 2 daga, og fór svo til Millsaps-Robbins-Leavitt fjöslkyldunar (fólkið sem ég vann fyrir í fyrra) í nokkrar nætur. Þurfti að mæta í skólan e-h morgna, á "orientation"´, enskupróf, annað "orientation", skrá mig í tíma.....bla bla bla.
25 flutti ég svo inn í íbúðina mína
Hélt reyndar að herbergið mitt væri "aðeins" stærra, en þetta er fínt. Byggingin sem ég bý í er með svona "lounge area" þar sem eru pool borð, fótboltaspil og 3 risasjónvörp. Svo erum við með tölvuherbergi, æfingaraðstöðu og ljósabekki :) Þannig þetta er fínt. Íbúðin er með 4 herbergi og 4 baðherbergi. Svo erum við með stofu og eldhús. Meðleigjendurnir eru fínir. Þetta er nú samt kallað "the multi-cultural apartment" þar sem allar af okkur tölum annað tungumál. Ein gellan er frá Kína, er hérna í Meistaranámi. Gellan vi hliðina á mér er fædd í Ethíópíu en alin upp í Washington DC, og svo er ein frá Kóreu....en hún er fædd og uppalin í Californíu,og hefur aldrei komið til Kóreu.
Skólinn er líka fínn, tímarnir sem ég er í eru flestir bara skemmtilegir...
...Fyrsti tíminn sem ég er í heitir "english composition woth focus on race", þannig þetta er svona "les/ritgerðaráfangi" en megin áherslan er á mismunandi þjóðerni. Næsti tími er ÆÐI!!! Hann heitir "African American studies, special topics. Hip-hop and black culture". Reyndar svolítið skrítið að vera eina hvíta gellan af yfir 30 manns, en það eru 3 hvítir strákar *lol* Og haldið þið ekki að Kennarinn minn sé ekki þessi líka "good lookin brotha"
Hann er ábyggilega svona að nálgast 30, mætir í tíma í gallastuttbuxum (svona hip-hop style), "Welcome to the hood" stuttermabol, í strigaskóm og með svona "rasta" húfu eins og Brynja litla er alltaf með. Hann er alveg svalur, ég tók mynd af honum í dag....bara til að sýna ykkur hvað ég er að tala um. Svo segir hann bara shit og fuck og allt í tímum....og eins og hann sagði þá er það bara allt í lagi fyrst þetta er "hip-hop" tími! Næsti tími sem ég er í er dans. Hélt að þetta væri svona bóklegur tími, til að læra um dans og danstegundir. En nei nei, við erum að dansa bara í öllum tímum!! Þetta er bara fínt. Ekkert til að hrópa húrra fyrir, en virðist vera frekar auðvelt að fá góða einkun. Síðasti tíminn er HELL!!! Hann heitir "African American studies, History since 1900", eini sögutíminn sem var opinn!! Nei nei...þetta er ekkert svo slæmt. En þetta er stærsti tíminn sem ég er í, ég held það sé nálægt 100 manns með mér í tíma. Það er líka frekar erfitt að skilja kennarann....hún er líka frekar skrítin, hún heitir afrísku nafni, Anodolo (held ég), en lítur út fyrir að vera austur Evrópsk eða eh *lol*
En að öðru leyti gengur allt bara ágætlega. Er búin að kauða flest sem ég þarf hérna, er reyndar að fara yfirum að vera ekki með græjur né sjónvarp. But hey....that's life I guess 
Ég ætla ekki að drekkja ykkur alveg á fyrsta bloggi en ég lofa að vera dugleg að skrifa núna!! Endilega droppiði línu, skrifið comment og e-h. Það er alltaf gaman að heyra frá liðinu heima á klakanum!! 
Sveitt kveðja frá Philly......
Ég veit ég er ekkrt búin að blogga síðan ég fór, en það er búið að vera svo mikið að gera og svo er netið alltaf að detta út heima. En það er verið að laga það.
Annars er bara allt gott að frétta :)
Ég lofa að fara að skrifa bara á morgun eða hinn!!
Knús og kossar frá USA!!!