nóvember 22, 2004

Fer að styttast í það...

Vá hvað tíminn er fljótur að líða! Það eru bara 4 vikur þangað til að prófin eru búin og mín er bara að koma heim. ÚFF. Ég verð nú reyndar að viðurkenna að ég er farin að hlakka til að koma heim...fá eitthvað almennilegt að borða. Það er ótrúlegt þegar maður er í burtu í svona tíma þá fer maður að sakna furðulegustu hluta....mig til dæmis langaði ekkert SMÁ í bjúgu með uppstúf og kartöflum og appelsín að drekka í gær!!

En annars er bara allt ágætt að frétta. Er að leggja lokahönd á 8 bls ritgerð og þarf svo að byrja á annarri sem á að vear e-h staðar á bilinu 5-15 bls. Ég var að reikna saman það sem ég er búin að vera að skila inn síðustu 2 vikur og það er um 40 bls!!! Það er ekkert smá sem maður er látin skrifa hérna *lol*

Thanksgiving fríið er að byrja núna á miðviudaginn. Ég er í fríi í 5 daga þannig ég ætla bara að fara til familíunnar sem ég var að vinna hjá í fyrra og vera þar í 3 daga, hertaka gamla herbergið mitt og leika við strákana. Nenni ekki að hanga ein heima í næstum viku þar sem allar gelurnar sem ég bý með eru að fara e-h í burtu.

En jæja....tími til að koma sér í bælið. Er að fara í próf í fyrramálið, þarf að vakna snemma til að læra!!

Knús og kossar...

Posted by kyr at 05:43 FH | Comments (96)

nóvember 14, 2004

R.I.P. Osirus

376x180.jpg

Russell Tyrone Jones
Fæddur 15.11.1968 - Dáin 13.11.2004

Ol'Dirty Bastard, einnig þekktur sem Dirt McGirt, Big Baby Jesus, Osirus, Joe Bannanas, Dirt Dog og Unique Ason, dó í New York Borg af ófyrirsjáanlegum orsökum. Hann hafði kvartað um verki í brjóstholi fyrr um daginn. Enn er ekki vitað um orsök en krufning verður gerð í dag og eiga niðurstöður að liggja fyrir á morgun.

Jones, einn af stofnendum Wu Tang Clan, verður sár saknað í hip-hop heiminum.

Posted by kyr at 05:20 EH | Comments (7)

nóvember 11, 2004

Ein alveg löt...

Eg er alveg versti bloggari í heimi!

Af mér er bara allt það besta að frétta. Er reyndar að bilast á dónaskapnum í sögu kennaranum mínum.....en hey....that's life. Mér gengur annars bara ágætlega í skólanum. Er að fá ágætis einkunnir þannig, ég kvarta ekki mikið.

Annars er farið að kólna EKKERT SMÁ hérna!! fór niður í 22F!! Hvað ætli það sé...-2 eða eh. Ég er farin að ganga í úlpu og komin með ágætis kvef og svona....Ætli veturinn sé ekki bara næstum kominn!! ;)

En ég er búin að setja inn nokkrar myndir. Graffiti myndir frá labbitúr sem við fórum í fyrir einn tímann minn. Geggjað flott verk!!

En ég verð að fara að sofa...
Ég er með geggjað slúður sem ég ætla að reyna að pósta á morgun!!

Leiter aligeiter!!

Posted by kyr at 05:57 FH | Comments (140)