apríl 10, 2005

Góðan daginn :)

Ferðin til NY var snilld!! :)
Kom til NY um 6 á föstudaginn og byrjaði náttúrulega á því að setjast á bar með Birnu og Lindu til að fá okkur einn öllara eins og alvöru Íslendingum er best lagið!! Svo fórum við með dótið mitt heim til Óla bróður Birnu og tókum okkur til fyrir kvöldið. Óli fót svo með okkur á klúbb em heitir "Satalla" þar sem var eh live afrískt band. Alveg fyndið....vorum að leika grúppíur...takandi myndir með aðalgaurunum.....gerandi hinar hellurnar abbó en við náttúrulega vissum EKKERT hverjir þetta voru!!! HAHAHAHAHAHA Svo fórum við á "Le Souq" (eða hvernig sem þetta er skrifað). Það var allt í lagi þar svona fyrst...en svo fóru þeir að spila eh Techno/house....eh dæmi þannig ég var alveg að sofna!! *lol* Kíktum svo náttúrulega og fengum okkur að borða á leiðinni heim....hahahaha!! Ef þið kíkið inn á myndasíðuna mína þá eru myndir þar....og fallegar mydir af borgurunum okkar Birnu!!

Á laug vöknuðum við svo um hádegi...kíktum svo í eh outlet moll sem er reyndar úti....og það rigndi svo mikið að maður varla gat setið í bílnum á leiðinni heim förin voru svo blaut!! Fórum reyndar fyrst á Appleby's.....það eru líka fallegar myndir af því á myndasíðunni. Við vorum 4 að borða mar sem hefði nægt 7-8 manns!!! En um kvöldið kíktum við svo á klíbb sem er bara rétt hinumegin við hornið frá Óla.....hann heitir "Vudu Lounge". Þar var almennileg hip-hop, dancehall, r'n'b etc tónlist allt kvöldið.

Á sunnudaginn chilluðum við svo bara heima allan daginn. Fór svo um 4 að hitta Lamont. Fórum og fengum okkur að borða og svo var það bara Grehound businn heim!! Og Jesús Guð!! Það var eh gella sem sat við hliðina á mér sem var alltaf að sofna og bara hálliggjandi á öxlinni á mér....var svo næstum bara farin að slefa á mig!! Ég var nú næstum búin að vekja greyið til að segja henni að slefa frekar á ganginn en mig!! En þá tróð hún eh púða undir hausinn á sér so.....I was safe!!

Annars er bara mest lítið að frétta. Skilaði ritgerð um daginn sem ég hélt að ég mundi rétt fá viðunnandi einkunn fyrir...en viti menn...haldið þið að konan hafi ekki bara fengið annað A!!! Ég ætti að verða rithöfundur bara!! HEHE

Og já.....fór og tók þátt í karaoke keppni á fimmtudaginn....og bara tók mig til og VANN takk fyrir!! Einn af dómurunum var producer sem er búin að fá 14 Grammys!!! JÁ ÉG SAGÐI 14!!! Svo labbar hann umm að mér og bara hellir yfir mig complimentum!! Eða reyndar gerðu allir dómararnir það þannig....þetta ar ágætis egó búst!!! :D

En jæja....ég ætla að klára að þrífa hérna....drífa mig svo á tónleika mep Aliciu Keys og John Legend!! ;) Mundi troða inn myndum seinna en myndavélar eru bannaðar!!

Later peoples!! ;)

Posted by kyr at 05:36 EH | Comments (953)

apríl 01, 2005

NEW YORK HERE I COME!!

Oh...ég er alveg farin að hlakka til!! Brina vinkona og Linda eru í NY hjá Óla bróður hennar Birnu...ég verð nú að fara að hitta þær fyrst þær eru á landinu!! Gott líka að komast aðeins í burtu héðan. Næ líka kannski að hitta Lamont og svona. Gotta catch up with the friends ;) Ætla að hoppa í rútuna á morgun eftir skóla, kíkja á djammið í NY og reyna svo að draga stelpurnar að skoða Frelsisstyttuna á laug. Alveg fyndið að ég hef farið til NY....ábyggilega 10 sinnum og aldrei séð þessa blessuðu styttu!!

Annars er allt að gerast þennan mánuðinn!! Var í "audition" fyrir "Temple Idol" í gær, fæ að vita eftir ca viku hvort ég komist inn í það. Ætla svo að fara með Varian vinkonu í annað 'audition' fyrir eitthvað talent show hérna á Campus. Svo er karaokee keppni í "The Draught Horse" (bar) apríl....verð að fara þangað því vinningurinn er peningur!!! ;) Svo er ég að fara á tónleika með Alicia Keys og John Legend 10.Apríl og Aðra með Nelly 16.Apríl. Þannig það er allt að gerast!!

En best að fara að koma sér í rúmið...þarf að vakna snemma og klára að læra heima!!

Peace out y'all!!

Posted by kyr at 04:28 FH | Comments (197)