Jæja....frumraun okkar í hljómsveitinni Úranus (mér finnst þetta ennþá fyndið nafn!!) á Celtic Cross var núna um helgina. Gekk bara líka svona svakalefa vel. Alveg fyndið hvað er samblanda þarna af ALLSKONAR LIÐI!!! Það mætti þarna alveg 1,2 Selfoss lið, í smekkbuxum með skuplu á hausnum og snuddutennur. Svo var nokkrar þarna um fimmtugt....og ein af þeim alveg MACKIN eh tvítugann!!! Frekar skondið...svo náttúrulega mættu, Jenný, Ragga, Marta, Sara, Sigrún, Maggi, Halli, Gummi.......ofl ofl. Verða allir að bera stórstjörnuna augum!! ;) hehe Svo verðum við kannski að spila um Verslunarmannahelgina...kemur allt í ljós á næstu dögum ;)
En ég verð nú að lýsa yfir vonbrigðum mínum með Pink Ladies stelpurnar!!! Einu sem ég sá voru Ellý, Vigga og Herdís....og sá aðeins í Hörpu....og svo voru þær bara farnar eftir 2 lög!!! Mín ekki alveg sátt sko!! *lol* OG TINNA HVAR VARST ÞÚ!?!?!?!?!
En svo fórum við gellurnar á Snoop á sunnudaginn....ég verð nú að segja að ég held að við höfum hækkað meðalaldurinn um svona 10 ár!!! hahaha. Alveg lítil börn þarna!! Ein 15 ára ælandi í vaskinn inni á klósetti, önnur dauð frammi o.s.frv. En við fórum inn.....og ætluðum að skemmta okkur alveg konunglega!! En ég verð nú að viðurkenna að ég varð nú fyrir vonbrigðum!! Hljóðkerfið....eða hljómburðurinn var nú ekki alveg að gera sig....Ef maður stóð ekki alveg í miðjunni þá bara heyrði maður ekkert hvaða lag hann var að taka nema hlusta mjög vel á textann!! Það var svo svakalegur bassi að það var það eina sem maður heyrði...but oh well :P lol Ég skemmti mér nú samt bara vel!! :D
En já...svo er ég líka flutt á Grettisgötu nr 43....þannig endilega kíkið við í komðuna mína ;) Þetta er nú bara eh 25-28 fm (ekki alveg viss), en mér finnst þetta mjög kósý :D Fínt fyrir mig eina bara...
En já....ég er víst í vinnunni þannig það er best að fara að gera eitthvað!!
LEITER GEITER!!!