|
[Heimasíða]
| |

Vinsamlegast athugið að viðfangsefni og tímaáætlanir verkefnis 2 geta breyst
vegna samstarfs okkar við Bemidji State University. Einhver verkefni verða á
ensku og í samstarfi við nemendur þar. Athugið að þið megið alltaf hringja í mig
ef þið þurfið þess með hvenær sem er, síminn er 896-3357 og síðan auðvitað senda
tölvupóst á lara@lara.is
| Verkefni 1 - Skiladagur
31. maí - 10% |
| Efni: |
Kanna fjarkennslu á Íslandi og fjalla um hana á WebCT |
| Lesefni: |
Veljið efni (úr lesefnislista eða finnið annað) |
| Undir-búningur: |
Hafið samband við kennara á
lara@lara.is og fáið efnið samþykkt til að gæta þess að tekið sé fyrir
gott yfirlit yfir þá fjarkennslu sem er til staðar í landinu í dag. |
| Lengd: |
300-350 orð (heimildir ekki taldar með) |
| Efnisatriði |
Stutt yfirlit yfir fjarkennsluna. Eigið mat á því hvað
ykkur finnst um kennsluna. Heimildir (vefsíður og greinar - ekki með í
orðatalningu) |
| Skil: |
Setjið verkefnið undir umræðuþráðinn "Fjarnám á Íslandi" á
WebCT. Hafið titilinn lýsandi fyrir efnið sem þið eruð að fjalla um t.d.
"Fjarnám í VMA" ef þið eruð að fjalla um það. |
| Verkefni 2, umræður -
Skiladagar 7, 14, 21 og 28 júní - 50% |
| Efni: |
- Félagslíf fjarnemenda:
Félagslíf á Neti og með staðbundnum lotum. Eru staðbundnar lotur
nauðsynlegar? Þarf félagslíf á Neti?
- Hvatning og upplýsingamiðlun:
Hvernig eru nemendur helst hvattir áfram og hvernig miðla þeir
upplýsingum sín á milli og frá kennara til nemenda.
- Námsefni:
hvernig er best fyrir nemendur að nálgast námsefni og
hvernig er best að miðla því? (Bækur, vefur, gagnasafn, umræður, annað)
- Samskiptahæfni á Neti:
Hvaða hæfileika þarf að hafa til að nýta til fulls samskipti á Netinu
við námið.
- Tækni og fjarnám:
Skilgreina tæki og tól. Nauðsynleg tæknikunnátta. Tæknilegur
stuðningur við nemendur.
- Umræðustjórnun:
Hvernig er best að stýra umræðum á Neti. Hvaða aðferðir eru til og
hverig er best að beita þeim.
|
| Lesefni: |
Af lesefnislista (takmarkandi fyrir suma þætti), leitið í
Gegni og á bókasafni KHÍ. Athugið að gott er að vera búin að velja sér
efni fyrir 4. júní til að nálgast efnið á bókasafni ef þess þarf með. |
| Tilhögun: |
Nemandi velur 4 af ofangreindum 6 efnisflokkum að
eigin vali til að fjalla um dýpri umfjöllun inn á WebCT. Í fyrstu viku
þarf bara að velja eitt innlegg, hinar vikurnar þarf einnig að bregðast
við umfjöllun annarra úr tveimur öðrum efnisflokkum. Ekki þarf að hafa
samráð við kennara um hvaða efni er valið nema ef þið viljið bæta við
efnisflokk. Athugið að einhverjir þeirra verða á ensku í samráði við
Bemidji og einnig getur verið að einhverjir flokkar breytist. |
| Lengd: |
Dýpri umfjöllun: 300 - 350 orð, viðbrögð 50-100 orð |
| Efnisatriði: |
Stutt yfirlit yfir efnisflokkinn þ.e. það sem ykkur finnst
mikilvægast. Eigið mat á efninu almennt og mikilvægi þess í fjarkennslu.
Heimildir eru nauðsynlegar í dýpri umfjöllun en æskilegar í viðbrögðum.
Teljast ekki með í orðatalningu. |
| Skil: |
Setjið efnið inn á viðeigandi umræðuþræði með lýsandi
heiti um hvað þið eruð að tala. Þið eruð þarna að hefja umræðu um tiltekið
efni innan umræðuflokksins og aðrir bregðast við ykkar innleggi undir þeim
þræði en hefja ekki nýjan þegar um er að ræða viðbrögð við því sem er
þegar komið. |
| Lokaverkefni: Síðasti
skiladagur 20. ágúst - 40% |
| Efni: |
Veljið eitt viðfangsefni úr fyrsta eða öðru verkefni og
kafið dýpra í það efni. Einnig má semja við kennara um að hanna eigin
fjarnámskeið. |
| Lesefni: |
Af lesefnislista, leitið í Gegni og á bókasafni KHÍ.
Athugið að gott er að vera búin að velja sér efni fyrir 4. júní til að
nálgast efnið á bókasafni ef þess þarf með. |
| Tilhögun: |
Nemandi velur viðfangsefni og lætur vita af því á WebCT
fyrir 1. júlí.
Ágætt er að nemendur með sömu eða lík viðfangsefni vinni saman. Nemendur
geta unnið einir eða saman. |
| Lengd: |
- Einn nemandi, 10 - 15 síður A4
- Tveir nemendur 20 - 25 síður A4
- Þrír nemendur 30 - 35 síður A4
Athugið að síðufjöldinn er einungis viðmið, skila má efninu sem vefsíðu
eða í öðru formi í samráði við kennara. Heimildalisti er ekki innifalinn í
viðmiðunarlengd. |
| Efnisatriði: |
- Yfirlit yfir efnið, hér er mikilvægt að geta heimilda, vísa í það
sem hefur verið gert.
- Eigin umfjöllun, rökstudd með tilvísunum.
- Tillaga um hvernig best megi leysa viðfangsefni með góðum rökum.
|
|