Formannsslagarinn

Ég þarf að kjósa mér formann
Þann sem besta pólitík kann
Get ég sagt hvað ég vil með sann
Æ ég veit ekki hvað ég vil

Össur vill ekki samræður
Það vill Solla
Össur styður húsmæður
Líka Solla
Össur segist besti formaður
Ekki Solla
Æ ég veit ekki hvað ég vil

Vil ég Össa Skarpa
Til að útvarpa
Er það Solla
Hún leikur sér ekki við polla

Framtíðarhóp vill Össur ekki
Það vill Solla
Hann heldur að kastist í kekki
Ekki Solla
Bæði vilja rjúfa landsins hlekki
Össur Solla
Æ ég veit ekki hvað ég vil

Bæði vilja uppá hjá mér banka
Össur Solla
Staðreyndum ég að mér sanka
Össur Solla
Þau hertaka alla mína þanka
Össur Solla
Æ ég veit ekki hvað ég vil

Vil ég Össa Skarpa
til að útvarpa?
Er það Solla?
Hún leikur sér ekki við polla

Sóló

Ég vil ekki um úrslitin spá
Hvort skipt verði um hest í miðri á
Verður Össur karlinn áfram í brúnni
Eða fellur hann út fyrir frúnni

Vil ég Össa Skarpa
til að útvarpa?
Er það Solla?
Hún leikur sér ekki við polla

Vil ég Össa Skarpa
til að útvarpa?
Er það Solla?
Hún leikur sér ekki við polla

Hún leikur sér ekki við polla

Hún leikur sér ekki við polla

©Öll réttindi áskilin. ©All rights reserved.
Lag/Music: Lára Stefánsdóttir.
Texti/Lyrics: Lára Stefánsdóttir, Gísli Gíslason.
Söngur/Singing: Lára Stefánsdóttir, Gísli Gíslason, Jón Víkingsson.