Skjalavistun
Regla númer
eitt
Skipulegðu
vistun á skrám frá fyrsta degi, það auðveldar þér lífið!
1. Ef þú notar Windows
Explorer þá er hann oftast að finna undir Start/Programs/Accessories og opnast á eftirfarandi hátt. (einnig má nota
Internet Explorer og skrifa c: eða nota Start/Run og skrifa Explorer).

2.
Taktu eftir að það eru lítil plús
og mínus
tákn fremst til vinstri. Plúsinn er notaður til að sjá fleiri
möppur sem eru undir því nafni sem hann stendur við og mínusinn til að sjá færri
möppur.
3.
Til að stofna nýja
möppu smellir þú á File/New og
velur Folder og myndast þá ný mappa
sem hefur nafnið New Folder eða
.
4.
Til að breyta nafni á
möpunni yfir í annað nafn
er smellt tvisvar hægt á nafnið New Folder og nýja nafnið skrifað. Einnig er hægt að smella einu sinni á nafnið
New Folder og velja File/Rename og
skrifa síðan nafnið sem þú velur. Best er að
nota ekki sér íslenska stafi í nöfnum á möppum eða nöfnum á skrám.
5.
Til að opna möppuna
er tvísmellt á hana.
6.
Nú skaltu stofna nýjar
möppur undir námsefnið sem bera t.d. nöfnin kafli1, kafli2,… eða vika1,
vika2… allt eftir því hvað kennarinn leggur til.
7.
Þegar þú ferð síðan vinna í forritum eins og ritvinnslu og töflureikni eða vefskoðarar eins og
Internet Explorer eða Netscape þá skaltu
alltaf finna rétta möppu áður en þú vista skjal. Ef þú ert t.d. að vinna
verkefni í ÍSL 103 í viku 2 þá þarftu að finna möppuna ISL103 og síðan Vika2
áður en þú vistar. Ef þú ert t.d. að vinna verkefni í kafla 2 í STÆ 103 þá
þarftu að finna möppuna STAE103 og síðan Kafli2 áður en þú vistar.
8.
Með Windows Explorer fylgi leitarmöguleikinn Tools/Find
sem er mjög hentugur ef mistekist hefur að vista skjal á réttum stað eða ef þú
manst ekki hvar skalið er vistað.
9.
Þegar verið er inni í flestum forritum er hægt að mynda nýja möppur (Folder) hvenær sem er og er
mjög sniðugt að notfæra sé það t.d. að mynda nýja möppu fyrir stærri verkefni
eða til að safna í myndum eða öðru efni sem getur nýst í mörgum verkefnum.
10.
Kynntu þér
hvernig ný mappa er mynduð í því ritvinnsluforriti sem þú vinnur í.
11.
Til að skipuleggja vistun skjala er líka hægt að nota My Computer eða Windows Explorer.
12.
Oftast er My Computer
á skjánum þegar kveikt er á tölvunni og er það táknað með mynd af tölvu. Tvísmelltu
á þetta tákn og opnast þá gluggi svipaður þeim sem hér er sýndur.

13.
Næst skaltu finna táknið fyrir C-drif
og tvísmella á það.
14. Mappa er stofnuð á sama hátt og Windows Explorer með File/New/Folder og sömu aðferðir gilda og nefndar eru í lið 3-7 hér að framan.