Myndir bera oft heiti af stafrænum myndavélum sem engan vegin er hægt að leggja á minnið hvað þá heldur vita hverju þær eru af. Það er gaman að taka myndir og smá saman safnast fleiri og fleiri myndir. Því þarf að skipuleggja myndasöfnin sín vel. Til þess eru nokkrar aðferðir og eru nokkrar þeirra nefndar hér.
Gefa myndum heiti
Gott er að koma sér upp einhverri reglu í myndaheitum. Nota til dæmis fyrsta
bókstafinn til að skýra eitthvað. Til dæmis má nota w sem fyrsta staf ef myndin
hefur verið unnin fyrir vef. Þar með má finna allar vefmyndir í einu vetfangi.
Síðan má nota tvo næstu fyrir ártal ef það er mikilvægt annars fyrir eitthvað
sem segir manni hvaðan myndirnar eru.
Dæmi:
| w01nat.jpg | Mynd unnin fyrir vef, tekin 2001 og er náttúrulífsmynd |
| m01jonjol.jpg | Af myndavél, tekin 2001, af Jóni á jólum. |
| w01hall01.jpg | Mynd unnin fyrir vef, tekin árið 2001 í Hallormsstaðaskógi og er mynd númer 1 í seríu af myndum. |
Þetta er auðvitað bara hugmynd en það er afspyrnu nauðsynlegt að koma sér upp einhverju þvílíku kerfi til að finna frekar myndir.
Raða myndum í möppur
Gott er að gefa möppum heiti sem lýsir myndum sem eru í möppunni. Til dæmis gæti
fyrsta myndin hér að ofan verið í möppu sem heitir "list" því viðkomandi vill
taka listrænar myndir og sú næsta í möppu sem kallast "fjolskylda" því þarna eru
fjölskyldumyndir. Gott skipulag á möppum getur sumsé hjálpað til við að finna
myndirnar.
Myndvafrinn IrfanView
Oft er gott að eiga myndvafra sem getur sýnt á einfaldan hátt yfirlit mynd.
IrfanView er ókeypis forrit (freeware) sé ekki verið að nota það í atvinnuskyni
sem hægt er að nota til þessara verka. Forritið má nálgast á
http://www.irfanview.com/ ágætt er að
lesa hjálpina með forritinu til að glöggva sig betur á því. Gætið ykkar þó að ef
þið eruð með aðra myndvafra í tölvunni ykkar gætu myndir farið að kalla upp
IrfanView þegar smellt er á þær úr stýrikerfi.