|
Ritun upplýsinga á vef er bæði lík og ólík því að skrifa í ritvinnslu.
Hún er lík annarri ritun þar sem um það sama er að ræða; þið eruð að setja
fram eigið efni sem þarf að vera skýrt og skilmerkilegt þrátt fyrir að á
vefsíðu sé það stutt af öðru efni. Hafið allar almennar ritunarreglur í
heiðri við skrif á vef.
Það sem er ólíkt við að skrifa á vef er fyrst og fremst það að
lesandinn er öðruvísi. Sá sem les vefsíður er yfirleitt óþolinmóðari en sá
sem situr í rólegheitum með ritgerð eða bók. Því þurfið þið að skrifa enn
skýrar og reyna að hafa textann knappan en jafnframt koma fram öllu því
sem þið viljið segja. Einnig er mikilvægt að hafa í huga hverja þú vilt fá
til að lesa síðuna þína og rita textann miðað við það.
Hér eru nokkrar reglur sem gott er að hafa í huga:
- skrifið skýrt og skilmerkilega eins knappan texta og hægt er án þess
að efnið missi merkingu. Kannski er rétt að hafa blaðamenn í huga og
hvernig textinn þeirra þarf að líta út.
- ef textinn á að vera langur - notið titla, undirtitla og skiptið
textanum niður með greinarskilum. Margir skanna einungis vefsíður en
lesa textann ekki orð fyrir orð.
- notið upptalningar ef þið viljið koma einhverjum atriðum skýrt til
skila. Lesendur renna yfirleitt betur yfir efni sem er raðað í punktum.
- ekki skrifa langar málsgreinar, ekki fela aðalatriði inni í löngum
texta
- gætið þess að leggja ekki áherslu á allt á síðunni með feitletrunum,
hreyfingum, undirstrikunum og skáletrunum. Það er þreytandi fyrir
lesandann og það er ekki hægt að draga athyglina að öllu. Veljið vel úr
hvað það er sem þið viljið að lesandinn sjái fyrst.
- skrifið textann þannig að hver síða standi fyrir sínu, ekki gera ráð
fyrir að lesandinn fari endilega á undirsíður. En gætið jafnframt að því
að fylla síðuna ekki of mikið.
- lesið vel yfir textann þannig að hann sé réttur og skýrt fram
settur.
|