Skjalavarsla - skoða skjöl á hörðum diski

Til að skoða skjöl má fara í megin atriðum tvær leiðir. Með því að smella á "My Computer" af skjáborði (desktop) eða velja að nota "Windows explorer" sem valinn er með leiðinni Start - programs - Accessories - Microsoft Explorer. Hver velur þá leið sem honum hentar.

Hér er til dæmis dæmi um uppsetningu á tölvu þegar búið er að smella á "My Computer":

A-drif stendur alltaf fyrir disklinga í undantekningartilfellum líka B drif ef tvö disklingadrif eru í tölvunni.
C-drif stendur alltaf fyrir harðan disk tölvunnar stundum eru fleiri en einn harður diskur í tölvu og þá eru notaðir bókstafirnir D, E o.s.frv. En táknmyndin er alltaf sú sama. Takið eftir henni og munið að C drifið er örugglega harður diskur og sú táknmynd á diskum sem eru sömu gerðar
D-drif Hér er D drifið fyrir geisladiska, takið eftir hvaða táknmynd er þá notuð. Hinsvegar breytist þessi táknmynd oft þegar geisladiskar eru settir í drifið og birta þá táknmynd þess forrits sem er í drifinu. Geisladrifin koma yfirleitt alltaf beint á eftir hörðum diskum.
E-drif Takið eftir E drifinu hér það er dálítið ruglingslegt. Fyrir það fyrsta stendur D$ á undan nafninu og síðan er kross yfir tenginguna. Þetta er skilgreint netsvæði (sett upp með s.k. map fyrir þá sem hafa áhuga á því) og oft notað á netkerfum þannig að notandi geti farið beint inn á heimasvæðið sitt á stórri móðurtölvu. Hér er tenging beint á D drif móðurtölvu sem heitir Ugla. Rauði krossinn yfir tenginguna þýðir að tengingin er ekki virk akkúrat þegar þessi mynd er tekin. Væri hún það hverfur krossinn. Síðan eru nokkur fleiri svæði af móðurtölvu skilgreind sem drif eða svæði til hagræðingar fyrir notandann. Hér er til dæmis lastef heimasvæði notanda og samskra sameiginlegt svæði ákveðinna notenda á kerfinu.
Control Panel Þetta er ekki drif heldur stytt leið í s.k. stjórnborð þar sem má breyta stillingum og uppsetningum í tölvunni.
My Digital Camera Hér hefur verið sett upp stafræn myndavél og því á hún sína eigin táknmynd. Þarna má því smella til að ná myndum af myndavélinni.

Hér má síðan smella á drifin og skoða hvað í þeim er, bæði skjöl og skrár sem geymd eru í mismunandi möppum eða hólfum. Möppur eru táknaðar með en skjölin síðan yfirleitt táknuð með því forriti sem þau voru búin til. Í möppurnar eru síðan sett skjöl og jafnvel aðrar möppur til að setja skjöl.
 

© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2001