Skjalavarsla - Áhugaverðir staðir vistaðir í vefskoðara

Þetta lesefni er miðað við Microsoft Explorer™ en þeir sem hafa annan vefskoðara ættu að finna samsvarandi atriði hjá sér.

Það er afar mikilvægt að flokka og skipuleggja þá vefi sem oft er verið að skoða í starfi eða sér til ánægju. Hver þekkir ekki þá pirrandi tilfinningu að finna ekki vef sem var svo einstaklega góður og hlýtur að vera flokkaður einhversstaðar með uppáhalds vefstöðunum (favorites) í vefskoðara.

Hér til vinstri má sjá hvernig ég flokka mína uppáhaldsstaði og takið eftir að þeir eru í stafrófsröð. Yfirleitt lendir nýtt efni neðst í listanum sem getur verið hvimleitt því okkur er eiginlegt að finna eftir stafrófsröð, þá er bara að ýta á hægri mús yfir listanum og velja þar "Sort by name". Eftir það er allt í stafrófsröð.

Erfitt getur verið að ákveða hvernig flokkuninni ætti að vera háttað og rétt að gefa sér smá tíma í að velta því fyrir sér og vera síðan óhræddur við að breyta síðar ef við uppgötvum eitthvað betra.

Til að bæta við efni á listann þarf einungis að velja "Favorites" og síðan "Add to Favorites". Hnappurinn "Create in" gefur manni möguleika á að sjá eða fela möppulistann. Síðan er hægt að smella á möppuna sem við viljum að þetta lendi í og þar með liggur sams konar efni á sama stað. Ef hinsvegar þarf að búa til nýja möppu þá er smellt á "New Folder" og sú búin til. En munið að það getur verið nauðsynlegt að raða eftir stafrófsröðinni aftur.

Takið eftir að hægt er að smella í hakið "Make available offline" sem þýðir þá að vefsíðan er á harða diski tölvunnar og hægt að skoða hana þó tölvan sé ekki nettengd en þá er auðvitað ekki hægt að ná í nýjustu útgáfu.

Alltaf þarf að skoða flokkun og taka til í vefslóðunum sem maður geymir. Þá er farið í valkostinn "Favorites - Organize Faavorites" Þessi valkostur þarf e.t.v. ekki nánari skýringar en munið að það er gott að líta yfir síðurnar öðru hvoru, henda því sem síðar reynist ekki gagnlegt og athuga hvort tenglarnir séu virkir, hafi flutt eitthvað annað eða að efnið þurfi á einhvern hátt að skipuleggja upp á nýtt.

© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2001