Skjalavarsla - Þrautir
Gerðar af nemendum á námskeiði, febrúar 2002
-
Rútugjald hefur verið greitt í heimabanka og kennitala eða nafn finnast
ekki á nemendaskrá. Við vitum því ekki fyrir hvaða nemanda var verið að
greiða. Hvað er til ráða?
-
Hvernig er fljótlegast og áhrifaríkast að minna 20 nemendur á að skrá
sig á helgarnámskeið sem þeir þurfa að taka?
-
Hvað kalla menntamálayfirvöld framhaldsskólastigið á ensku?
-
Hverju svarar þú ef nemandi spyr hvernig eigi að sækja um jöfnunarstyrk?
-
Hve margar stúlkur eru í 8-liða úrslitunum í
Gettu betur?
-
Hvaða skóli útskrifaði konur í fyrsta sinn
15. janúar 2002?
-
Hvernig finn ég vínbúgarð í Frakklandi til að kaupa?
-
Öll viljum við vita um næringarinnihald matarins sem við borðum. Hvernig
finnum við út hvert það er?
-
Þú hefur áhuga á að sjá umfjöllun bæjarstjórnar Akureyrar um nýju
stólalyftuna bænum.
-
Hvernig á að prenta út fjarvistaeyðublöð fyrir ríkisstarfsmenn?
-
Ef þig vantar raðhúsaíbúð á Akureyri, og þú hefur ákveðnar hugmyndir hvernig
hún á að vera. Hvar leitar þú?
-
Senda þarf bréf til allra kennara. Til að reyna að fanga athygli þeirra
í öllu þessu pappírsflóði ákveð ég að hafa mynd á bréfinu. Hvar finn ég
mynd? (ath. þetta er bréf en ekki rafrænn póstur).
-
Kennari óskar eftir stærðfræðibók. Höfundur er Jón Hafsteinn o.fl.Útgefandi
Tölvunot. Hvar er best að nálgast upplýsingar um bókina?
-
Hvar á vef FVA finnum við allt um þjóðsögur og jarðfræði "undir jökli" á
Snæfellsnesi?
-
Hvar finnum við hverjir eru skólastjórnendur grunnskólanna á Vesturlandi?
-
Bókaverslunin Amazon á netinu nýtist oft vel við innkaup: Vefslóðin er:
http://www.amazon.com
Finnið bókina In a sunburned country eftir Bill Bryson.
Hvert er verð bókarinnar hjá Amazon?
-
Blackwell í Oxford er útgáfufyrirtæki sem einnig rekur eigin netverslun.
Vefslóðin er:
http://www.blackwell.co.uk Finnið aftur bókina In a sunburned country
eftir Bill Bryson.
Hvert er verð hennar hjá Blackwell?
-
Berið nú saman verð milli Bandaríkjanna og Bretlands. Frá hvoru landinu
væri hagstæðara að panta bókina?
-
Hversu margar greinar hafa verið skrifaðar um asparryð í Morgunblaðinu frá árinu 1997 til dagsins í dag?
-
Hver er merking þess að þreyja þorra?
-
Þú færð í hendur námsferil frá Iðnskólanum í Reykjavík þar sem er áfanginn
MOM 103. Þú þarft að vita fyrir hvað MOM stendur til að vita hvar það á að
flokkast í mati.
-
Þig langar í gönguferð í Sviss í júlí
-
Segjum svo að hún Sigga vinkona mín sé
farin að vera með einhverjum gæja og ég er alveg að farast úr
forvitni og langar að vita eitthvað um þennan gæja. Ég hef
komist að því að hann heitir Sigurður og veit ca. hvar hann býr, en meira ekki.
Hvar leita ég nú að einhverjum upplýsingum um hann?
-
Og svo líður tíminn…….En núna þarf ég
nauðsynlega að ná í hana Siggu vinkonu og veit að hún er hjá honum Sigga.
Nú Sigga er með slökkt á símanum þannig að ég þarf að komast
að símanúmerinu hans Sigga…….?
-
Sigga og Siggi eru að hugsa um að fara að skella sér í húsakaup…… þvílík vitleysa.
Skyldi hann geta skaffað eitthvað til heimilissins, hann, húsvörðurinn í skólanum
þarna á svæðinu, gaman væri að vita hvað hann væri ca. með í laun?
-
Þú ert að fara í gegnum gömul skjöl og þarft upplýsingar um grisjun skjala. Hvar
finnur þú þær?
-
Þú villt afla þér upplýsinga um nýjustu launatöflu Starfsmannafélags ríkisstofnana
og fjármálaráðuneytisins.
-
Námsráðgjafi biður þig að senda bréf til allra Grunnskóla á frá
Ísafirði til Egilsstaða. Hvernig er best að finna heimilisföngin.
-
Þegar starfsmenn vantar upplýsingar á einum stað varðandi
kjarasamninga og réttindi svo sem fæðingarorlof, veikindarétt,
viðbótarlífeyrissparnað og fleira slíkt, hvar er helst að leita.
-
Hvar er hægt að fá upplýsingar um dagsetningar á næstu árum
varðandi helgidaga og annað slíkt. (Ef maður er að skipuleggja frí eða
leyfi fram í tímann)
© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2001