Skjalavarsla - heiti á skjölum eða skrám

Verkefni 1

Skoðaðu harða diskinn í tölvunni þinni eða svæðið á móðurtölvu ef þú vistar gögnin þín þar á eigin heimasvæði. Þar má finna mörg skjöl af mismunandi tegundum með mismunandi táknmyndum. Ekki er hægt að ætlast til að þú skiljir þau öll en hinsvegar ættir þú að þekkja af hvaða tegund skjölin eru sem þú hefur samið. Glöggvaðu þig á því hvernig skjölin þín eru skírð, hver stærð þeirra er og hvar þú geymir þau.

© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2001