Skjalavarsla - greina eigin skjöl
Verkefni 2
Farðu yfir skjölin sem þú átt og býrð til. Eiga þau eitthvað sameiginlegt? Þekkir þú nöfnin aftur og manst hvað var í skjalinu eða þyrftir þú að huga að nöfnunum upp á nýtt? Eru skrár og skjöl sem þú hefur búið til og þér finnst eiga saman eru þau saman? Eru öll skjöl í einum haug?
Þegar þú hefur skoðað skjölin og skrárnar sem þú hefur búið til (skiptu þér ekki af öðru sem liggur á tölvunni) reyndu að skipuleggja hvernig skipulagið á tölvunni þinni væri best. Hér er gott að setja upp í töflu sér til glöggvunar (búið til ykkar eigin flokkun í samræmi við viðfangsefnin ykkar):
| Tegund skjala | Staðsetning | Frekari lýsing |
| Tilkynningar og auglýsingar | My documents/tilkynningar | Opinberar tilkynningar og auglýsingar fyrir félagið eða stofnunina. |
| Einkaskjöl | My dokuments/mitt | Eigin skjöl og skrár sem |
Prófaðu nú að búa til þína eigin töflu með eigin flokkun. Skrifaðu þetta bara í ritvinnslu eða með penna á blað. Núna ertu bara að hugsa hvernig best er að skipuleggja hlutina.