Skjalavarsla - raða eigin skjölum
Verkefni 3
Nú er komið að því að raða skjölunum. Hafðu til hliðsjónar töfluna úr verkefni 2 þar sem þú skipulagðir hvernig þú ætlaðir að raða skjölunum þínum þannig að hægt sé að finna þau á auðveldan hátt aftur. Hendið skjölum sem þið eruð viss um að þurfi ekki að nota eða séu ónýt. Slík skjöl geta ruglað mann síðar meir en hér þarf að vera algerlega viss.
Ef þú ert með einhver skjöl sem þú þekkir ekki eða veist ekki hvar tilheyra er gott að búa til skjalasafn sem kallast "Annað" og þá er alltaf hægt að líta þangað eftir því sem ekki fellur í almenna flokka. Þar má líka setja skjöl sem eru af sjaldgæfri tegund.
Munið að gæta þess vel hvar þið vistið. Séuð þið á tölvuneti þarf að gæta þess að skjölin séu geymd þar sem tekið er afrit af þeim af kerfisstjórum netsins. Ef þið eruð ekki viss spyrjið þá kerfisstjórann.