Netfang af Netinu - Verkefni 3 

  1. Tengdu þig Internetinu með því að velja táknið fyrir vefskoðarann þinn t.d. Internet Explorer (blátt e).

  2. Nú skaltu skrifa veffangið http://www.visir.is/ í veffangsreitinn ( Location eða Go To) til að fara á síðu Vísis.

  3. Smelltu á Frípóstur@visir.is til að komast á skráningarsíðuna. Farðu neðar á síðuna þar sem stendur "uppsetning á nýju netfangi".

  4. Veldu nú "Netfang" til að skrifa inn nýja netfangið þitt. Þú skalt velja orð sem minnir á þig t.d. nafn, gælunafn eða upphafsstafi og bæta síðan við 1-2- tölum. Þú mátt nota bókstafi (ekki sér íslenska) og tölustafi frá 0-9.

  5. Smelltu á "Lykilorð" og veldu þér lykilorð sem er auðvelt að muna. Lykilorðið verður að vera fjórir stafir eða meira. Fylltu líka út Lykilorð aftur með því að skrifa aftur lykilorðið.

  6. Smelltu á "Skrá netfang" (og Continue ef það kemur upp).

  7. Lestu skilmálana áður en þú smellir á "samþykkja" (og Continue).

  8. Nú þarftu að gefa upp upplýsingar um sjálfan þig. Skrifaðu inn nafn, kennitölu, heimilisfang, póstnúmer og sveitafélag. 

  9. Svaraðu spurningu um kyn og fæðingarár. Ekki er nauðsynlegt að fylla út aðrar spurningar en þú getur gert það ef þú vilt. 

  10. Merktu við áhugasvið ef þú vilt en það er getur leitt til þess að þú fáir sendan óþarfa póst til dæmis auglýsingar.

  11. Smelltu á "Áfram" (og Continueþegar þú ert búin að svara spurningunum.

  12. Nú er netfangið þitt tilbúið og skaltu smella á "Tengjast" (og continue). 

  13. Til að lesa póstinn þinn ferðu í "Pósthólf" og til að senda bréf ferðu í "Skrifa bréf".

  14. Nokkrir aðrir möguleikar eru á síðunni t.d. "netföng" sem er hentugt til að safna saman neföngum ættingja og vina og flýtir fyrir póstsendingum.

  15. Nú skaltu slökkva á vefskoðaranum og ræsa síðan aftur. Farðu á http://www.visir.is/ og veldu Frípóstur@visir.isog gefðu upp notendanafnið og lykilorðið þitt.

  16. Fáðu netfang kennarans og sendu honum póst (Skrifa bréf ) þar sem þú tiltekur nafn, áfanga og hóp sem þú tilheyrir. Síðan sendir þú bréfið með því að smella á Senda.

  17. Fáðu netfang hjá einhverjum í bekknum eða hjá vini þínum og sendu honum póst.

  18. Athugaðu hvort þú hefur fengið póst með því að fara í Pósthólf.

  19. Næst þegar þú vilt lesa póstinn ferðu eins að þ.e. ferð inn á Vísir síðuna (www.visir.is), og gefur upp netfangið og lykiloðið. Þú getur lesið póstin þinn hvar sem er, heima, í skólanum eða annars staðar.

© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2000