Broskarlar

Broskarlar eða Smileys eru notaðir mjög mikið í tölvupósti og jafnvel á vefsíðum. Með þeim reynir sá sem skrifar textann að koma til skila líkamstjáningu, brosi, reiði, fýlu, gráti og fleiru. Hér eru dæmi um þá sem eru oftast notaðir:

:-) Brosir. Venjulega notað í tengslum við eitthvað grín og glens, jafnvel eitthvað sem þykir gaman.
;-) Brosir og blikkar. Hér er komin meiri kerskni í brosið. 
:-( Sorgmæddur. Eitthvað leiðinlegt og sá sem ritar er dálítið miður sín.
:,-( Grátur. Hér er sá sem ritar bréfið farinn að gráta yfir einhverju.
:-I Alveg sama. Skiptir ekki máli. Kannski eins og að yppa öxlum.
>:-) Kvikindisleg athugasemd með brosi. Sjáið hornin sem koma upp úr hausnum.

Ítarefni:

The Unofficial Smiley Directory, The WindSpiel Company

The UnOfficial Smiley FAQ eftir Don E. Z'Boray

© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2000