Til að æfa samskiptin er gott að eignast pennavini til að hafa samskipti. Finnið pennavini frá a.m.k. þremur löndum og skiptist á bréfum við þá. Það er oft erfitt að hefja umræður við einhvern sem maður þekkir ekki og því gott að sýna áhuga á þeim sem maður er að tala við. Spyrja spurninga til að tryggja að maður fái bréf til baka.
Hægt er að finna pennavini á Odin, norræna skólanetinu, í s.k. Kontaktgalleri og á evrópska skólanetinu sem kallast PenPal Corner en á evrópska skólanetnu má líka finna vefsíðu sem bendir á marga aðra staði þar sem má einnig finna pennavini.
Skrifið hjá ykkur nöfn pennavinanna, aldur, land og áhugamál. Segið síðan stuttlega frá samskiptunum og sendið kennara.