Verkefni 1

Til þess að taka þátt í Kidlink samskiptaverkefninu þarf að svara fjórum spurningum. Þegar þeim er svarað er hægt að taka þátt í öllum viðfangsefnum Kidlink, samskiptaverkefnum, spjallfundum og fleiru. Látið ekki nafnið "kid" rugla ykkur verkefnið var í eina tíð fyrir yngri krakka en það er breytt en það þótti ekki skynsamlegt að breyta nafninu.

Svaraðu spurningunum fjórum í Kidlink. 

Svörin fara til þeirra sem lesa yfir svörin. Síðan eru þau samþykkt og þú færð staðfestinguna senda. Þú færð e.t.v. líka notendanafn og lykilorð sem þú skalt geyma vel því það má nota til að fara á spjallfundi í Kidlink í s.k. Kidclub.

© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2001