Umræður og fréttir

Á Netinu má finna marga staði þar sem þeir sem hafa sömu hugðarefni ræða saman. Þetta er oft gagnlegt því það er oft hægt að læra af því sem aðrir vita eða af umræðunni við aðra. Ekki er hægt að lesa um allt eða vita allt af bókum.

Leita má að umræðu sem ykkur þykir áhugaverð á Google sem hefur yfirtekið s.k. Dejanews þjónustu og þar má finna alskyns umræðuhópa úr Usnet news sem eru fréttakerfi Netsins. Þar má nota vefinn til þess að lesa fréttir og skrifa fréttir inn á fréttaráðstefnurnar. Þar má ræða um ótrúlega margt, lesa umræðu annarra og leggja inn í umræðuna sjálfur.

Á Meta Network má einnig lesa ráðstefnur, þar þarf að skrá sig inn fyrst án þess að það kosti neitt og  taka þátt í umræðunni.

Fréttir má lesa á Netinu og þekkja flestir vef Morgunblaðsins mbl.is en þar er afar góð þjónusta og má fylgjast með fréttum jafnóðum og þær gerast. Einnig má finna íslenskar fréttir á visir.is

Margt fleira má finna og ein besta vefsíða með upplýsingum um fréttir á Netinu og hvernig má afla sér frétta af tilteknum atburðum sjálfkrafa og fleira má finna í bók Odd de Presno "The Online World" í kafla 9. Þessi bók var gefin út á prenti á íslensku árið 1996 og kallast "Netheimar". Meðhöfundar Odd voru Lars Andersen og Lára Stefánsdóttir. Odd uppfærir síðurnar á Netinu og þar má finna gríðarlegt magn af efni.

© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2001