Fjarvinna

Með fjarvinnslu er átt við að einstaklingar geti unnið við ýmis verkefni óháð staðsetningu og jafnvel óháð tíma. Fjarvinnsla í dag byggir oft á góðir símatengingu þar sem hluti af samskiptum fer fram á rafrænu formi og oft er um að ræða mikinn gagnaflutning. Dæmi um fjarvinnslu er símasvörun sem að í raun getur verið staðsett hvar sem er á landinu en einnig bjóða mörg stærri fyrirtæki starfsfólki sínu að vinna hluta af vinnu sinni fjarri vinnustað.  

Sífelld framþróun í fjarskiptum og gagnaflutningsleiðum gera fjarvinnsu mögulega þar sem staðsetning vinnustöðva verður óháð staðsetningu fyrirtækis. Dregið hefur úr stofnkostnaði og sjá margir fyrir sér að með ódýrari gagnflutningi verði fjarvinnsla enn betri kostur. Mörg fyrirtæki telja að með fjarvinnslu sé hægt að auka hagræðingu og ná fram sparnaði í rekstri.

Sumum líkar vel að geta verið óháðir staðsetningu við vinnu sína en aðrir sækja í að fá að vinna á vinnustað þar sem samskipti við vinnufélaga skiptir þá miklu máli. Tæknileg útfærsla á samskiptum og skipulagning vinnunar skiptir miklu máli og oft þarf að yfirvinna hefðbundin viðhorf til þess havð er vinna.

© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2001